United Silicon: Unnið hörðum höndum við að leysa þau mál sem upp hafa komið Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 28. mars 2017 20:31 Kvartanir frá íbúum vegna mengunar frá verksmiðjunni skipta hundruðum síðustu misserin. vísir/vilhelm
Forsvarsmenn United Silicon telja það ekki rétta lýsingu á störfum fyrirtækisins að segja að fyritækið vinni hvorki fyrir né með samfélaginu í Reykjanesbæ. Þetta segir í tilkynningu frá United Silicion. Tilefnið eru ummæli Ásmundar Friðrikssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins fyrr í dag þar sem hann gagnrýndi forsvarsmenn United Silicon harðlega og bað íslensku þjóðina afsökunar á því að hafa greitt götu fyrirtækisins á sínum tíma. Í ræðu sinni sagði Ásmundur að sér væri illa brugðið að frétta mengunarvandamálum og sviknum loforðum sem hann sagði einkenna upphaf starfseminnar sem hófst seint á síðasta ári. Rakti hann hvernig fyrirtækið hafði tryggt sér ýmisskonar fyrirgreiðslu með afslætti á sköttum og gjöldum, þar á meðal að fyrirtækið greiddi að hámarki fimmtán prósent tekjuskatt. „Hjá United Silicon hf. starfa í dag 65 manns auk þess sem keypt er þjónusta af fjölmörgum fyrirtækjum víða í Reykjanesbæ. Við teljum það ekki rétta lýsingu á störfum alls þessa fólks þegar þingmaðurinn segir fyrirtækið hvorki vinna fyrir né með samfélaginu í Reykjanesbæ,“ segir í tilkynningunni. „Þingmaðurinn segir alvarlegt að United Silicon hf., sem hafi notið 700 milljóna króna fjárfestingasamnings, skuli greiða starfsmönnum laun sem séu undir tekjuviðmiðunarmörkum. Þetta eru rangfærslur. United Silicon hf. greiðir laun samkvæmt gildandi kjarasamningum auk launauppbótar mánaðarlega. Meðallaun hjá fyrirtækinu eru 650 þúsund krónur í marsmánuði eða um 200 þúsund krónum hærri en þingmaðurinn fullyrðir að greidd séu hjá fyrirtækinu.“ Þá segir jafnframt að fjárfestingasamningurinn sem Ásmundur vísaði í hafi verið gerður í apríl árið 2014, sé gerður til 13 ára og geti að hámarki numið alls 485 milljónum króna. „Félagið hefur haft takmarkaðan hag af þessum samningi fram að þessu. Fyrirtækið er ekki byrjað að greiða tekjuskatt enda starfsemin rétt að hefjast en félagið hefur notið 50% afsláttar af hinu almenna tryggingagjaldi og afsláttar af fasteignaskatti.“ Í tilkynningunni segir að unnið sé hörðum höndum við að leysa þau mál sem upp hafa komið hjá fyrirtækinu. „Stjórnendur United Silicon hf. gera sér grein fyrir þeim mikla þrýstingi sem þingmenn og aðrir fulltrúar almennings hafa orðið fyrir vegna frétta um þá erfiðleika sem hafa steðjað að rekstri kísilmálmverksmiðju United Silicon hf. undanfarið. Hins vegar er unnið hörðum höndum við að leysa þau mál sem upp hafa komið og við höfum fulla trú á að það muni takast.“Yfirlýsing Uniced Silicon í heild sinni:Athugasemd vegna ummæla alþingismannsVegna ummæla Ásmundar Friðrikssonar alþingismanns um starfsemi United Silicon hf. við upphaf fundar á Alþingi í dag og í aðsendri grein í Víkurfréttum, er nauðsynlegt að eftirfarandi komi fram:Hjá United Silicon hf. starfa í dag 65 manns auk þess sem keypt er þjónusta af fjölmörgum fyrirtækjum víða í Reykjanesbæ. Við teljum það ekki rétta lýsingu á störfum alls þessa fólks þegar þingmaðurinn segir fyrirtækið hvorki vinna fyrir né með samfélaginu í Reykjanesbæ. Þingmaðurinn segir alvarlegt að United Silicon hf., sem hafi notið 700 milljóna króna fjárfestingasamnings, skuli greiða starfsmönnum laun sem séu undir tekjuviðmiðunarmörkum. Þetta eru rangfærslur. United Silicon hf. greiðir laun samkvæmt gildandi kjarasamningum auk launauppbótar mánaðarlega. Meðallaun hjá fyrirtækinu eru 650 þúsund krónur í marsmánuði eða um 200 þúsund krónum hærri en þingmaðurinn fullyrðir að greidd séu hjá fyrirtækinu.Fjárfestingasamningurinn sem þingmaðurinn vísar til var gerður í apríl 2014 og er til 13 ára og getur að hámarki numið alls 485 milljónum króna. Félagið hefur haft takmarkaðan hag af þessum samningi fram að þessu. Fyrirtækið er ekki byrjað að greiða tekjuskatt enda starfsemin rétt að hefjast en félagið hefur notið 50% afsláttar af hinu almenna tryggingagjaldi og afsláttar af fasteignaskatti.Til viðbótar fjárfestingarsamningnum var samið um sérstaka þjálfunaraðstoð að hámarki 2 millj. evra sem skyldi greidd samkv. framlögðum samþykktum reikningum. Félagið hefur haft umtalsverðan kostnað af þjálfunaraðstoð en sá útlagði kostnaður hefur ekki fengist endurgreiddur hjá hinu opinbera og fjármagn til þjálfunar aðstoðarinnar er ekki inni á fjárlögum þessa árs.Um aðra fyrirgreiðslu er það að segja að félagið nýtur undanþágu á aðflutningsgjöldum með sama hætti og stóriðjan í landinu, hvort heldur er á Grundartanga, í Straumsvík eða á Reyðarfirði. Af framansögðu má sjá að sú mynd sem Ásmundur Friðriksson alþingismaður dregur upp byggir ekki að öllu leyti á staðreyndum. Stjórnendur United Silicon hf. gera sér grein fyrir þeim mikla þrýstingi sem þingmenn og aðrir fulltrúar almennings hafa orðið fyrir vegna frétta um þá erfiðleika sem hafa steðjað að rekstri kísilmálmverksmiðju United Silicon hf. undanfarið. Hins vegar er unnið hörðum höndum við að leysa þau mál sem upp hafa komið og við höfum fulla trú á að það muni takast.
Tengdar fréttir Verksmiðja United Silicon sú eina sem liggur undir grun Umhverfisstofnun tengir uppsprettu arsenmengunar við ekkert annað en verksmiðju United Silicon í Helguvík. 28. mars 2017 11:45 Þingmaður biður þjóðina afsökunar vegna stuðnings við United Silicon Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýndi forsvarsmenn fyrirtækisins United Silicon harðlega á Alþingi í dag. Bað hann íslensku þjóðina afsökunar á því að hafa greitt götu fyrirtækisins á sínum tíma. 28. mars 2017 14:47 Íbúum stafar ekki bráð hætta af mengun „Það er hins vegar mikilvægt að það verði dregið úr þessari losun arsens og Umhverfisstofnun mun fylgja því eftir,“ segir Sigrún Ágústsdóttir, sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun. 28. mars 2017 07:00 Mest lesið Tveir reyndust í skotti bíls Innlent Fannst hann þvingaður til að afsala sér hundinum Innlent Harður þriggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Innlent „Þegar hægrið fær að ráða ferðinni óheft og án alls taumhalds fer illa“ Innlent Málningu kastað og ryskingar við sendiráðið Innlent Mótmælendur hindruðu för lögreglubíls í forgangsakstri Innlent „Ef hann hefði verið einn þá hefði þetta getað farið miklu verr“ Innlent Svandís og Guðmundur Ingi nýir leiðtogar Vinstri grænna Innlent Erfitt að setja tölu á hve margir vilji stjórnarslit Innlent Mannekla bindur hendur héraðssaksóknara í samráðsmáli Innlent Fleiri fréttir Vilhjálmur Hjálmarsson kjörinn varaformaður ÖBÍ „Ef hann hefði verið einn þá hefði þetta getað farið miklu verr“ Bátarnir frá eldgosinu í Vestmannaeyjum málaðir á vita Af hverju er barnið mitt alltaf að segja Skibidi toilet? „Þegar hægrið fær að ráða ferðinni óheft og án alls taumhalds fer illa“ Fagna löngu tímabærri breytingu Átök í miðausturlöndum, ný forysta VG og mállýska unga fólksins Mótmælendur hindruðu för lögreglubíls í forgangsakstri Svandís og Guðmundur Ingi nýir leiðtogar Vinstri grænna Málningu kastað og ryskingar við sendiráðið Fannst hann þvingaður til að afsala sér hundinum Biskup Íslands predikar í Vík á 90 ára afmæli kirkjunnar Erfitt að setja tölu á hve margir vilji stjórnarslit Harður þriggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Landsfundur ræðir stjórnarslit og nýjum reglum um blóðgjöf fagnað Tveir stórir skjálftar í Bárðarbunguöskjunni Ríkisstjórnarflokkarnir mælast með tuttugu prósenta fylgi Þorgerður Katrín: Enginn ráðskonurass undir fólki í Viðreisn Tveir reyndust í skotti bíls Mannekla bindur hendur héraðssaksóknara í samráðsmáli Kertavaka til minningar um konur sem hafa dáið vegna kynbundins ofbeldis Munu hlýða kröfu landsfundar verði tillaga um stjórnarslit samþykkt Munu ekki láta af herferð vegna launaþjófnaðarins Orlof húsmæðra: Barn síns tíma eða liður í jafnrétti? Ákveðinn hópur hafi unnið að niðurstöðunni undir yfirborðinu „Öllum ljóst að Ölfusárbrú verði að rísa“ Loksins mega hommar gefa blóð Blóðgjöf samkynhneigðra karla leyfð og ósáttar húsmæður Fimm bíla árekstur á Vesturlandsvegi Nefndin deili ekki við þá sem gagnrýna hana á „mis málefnalegan hátt“ Sjá meira
Verksmiðja United Silicon sú eina sem liggur undir grun Umhverfisstofnun tengir uppsprettu arsenmengunar við ekkert annað en verksmiðju United Silicon í Helguvík. 28. mars 2017 11:45
Þingmaður biður þjóðina afsökunar vegna stuðnings við United Silicon Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýndi forsvarsmenn fyrirtækisins United Silicon harðlega á Alþingi í dag. Bað hann íslensku þjóðina afsökunar á því að hafa greitt götu fyrirtækisins á sínum tíma. 28. mars 2017 14:47
Íbúum stafar ekki bráð hætta af mengun „Það er hins vegar mikilvægt að það verði dregið úr þessari losun arsens og Umhverfisstofnun mun fylgja því eftir,“ segir Sigrún Ágústsdóttir, sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun. 28. mars 2017 07:00