Sport

Komið fram í undanúrslit

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
mynd/bsí
Það er komið fram í undanúrslit á Meistaramóti Íslands í badminton.

 

Í meistaraflokki mætast Daníel Thomsen og Margrét Jóhannsdóttir, TBR, og Kristófer Darri Finnsson og Jóhanna Jóhannsdóttir, TBR, annars vegar og Jónas Baldursson og Sunna Ösp Runólfsdóttir, TBR, og Davíð Bjarni Björnsson, TBR, og Drífa Harðardóttir, ÍA, hins vegar.

Í A-flokki mæta Haraldur Guðmundsson og Guðbjörg Jóna Guðlaugsdóttir, TBR, Elís Þór Danssyni og Margréti Dís Stefánsdóttur, TBR, annars vegar og Birgir Hilmarsson og Sigrún Marteinsdóttir, TBR, mæta Jóni Sigurðssyni og Guðrúnu Björk Gunnarsdóttur, TBR.

Brynjar Már Ellertsson, ÍA, og Ingibjörg Rósa Jónsdóttir, UMFS, mæta í öðrum undanúrslitaleiknum Víði Þór Þrastarsyni og Hörpu Gísladóttur, Aftureldingu.

Í hinum undanúrslitaleiknum mæta Sigurður Ingi Pálsson og Bjarndís Helga Blöndal, Hamri, Agli Þór Magnússyni og Sunnu Karen Ingvarsdóttur, Aftureldingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×