FH eða Afturelding gætu þurft að bíða í tvær vikur

Valsmenn mæta Potaissa Turda frá Rúmeníu í fyrri leiknum í undanúrslitum Áskorendabikars Evrópu 22. apríl. Seinni leikurinn fer fram 30. apríl.
Valur mætir Fram í undanúrslitum Olís-deildar karla og fer fyrsti leikur liðanna fram miðvikudaginn 19. apríl. Næsti leikur er hins vegar ekki fyrr en viku síðar (26. apríl). Síðustu þrír leikirnir í einvíginu, að því gefnu að það fari í oddaleik, verða hins vegar leiknir á aðeins sex dögum (3.-8. maí).
Þetta þýðir að ef einvígi FH og Aftureldingar klárast í þremur leikjum en einvígi Fram og Vals fer í oddaleik klárast einvígi FH og Aftureldingar 14 dögum á undan (24. apríl/8. maí).
Ennfremur þýðir þetta að ef einvígi FH og Aftureldingar klárast eftir þrjá leiki þá mun það lið sem vinnur það einvígi ekki spila í 18 daga (24. apríl/12. maí) því fyrsti leikdagur lokaúrslitanna er ekki fyrr en 12. maí.
Lokaúrslitin um titilinn verða spiluð á tíu dögum (12. maí til 22. maí) eða fjórum dögum minna en fyrstu þrír leikirnir í einvígi Fram og Vals.
Leikjadagskrá undanúrslitanna og lokaúrslitanna má sjá með því að smella hér.
Tengdar fréttir

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Valur 26-27 | Valsmenn komnir í undanúrslit
Valur er kominn í undanúrslit Olís-deildar karla eftir ótrúlegan eins marks sigur, 26-27, á ÍBV í oddaleik í Eyjum í dag.

Óskar Bjarni: Bubbi var sigurvegari markmannanna í dag
Óskar Bjarni Óskarsson, annar þjálfara Vals, var hæstánægður eftir sigurinn á ÍBV.

Andri: Þakka ykkur fyrir að hafa spáð okkur svona slöku gengi
„Þetta er held ég mesta rugl sem ég hef lent í. Þvílíkur draumur að ná klára þennan leik, en ég held að við höfðum átt það skilið,” sagði Andri Þór Helgason, einn af markahæstu mönnum Fram í dag, þegar liðið sló út Íslandsmeistara Hauka.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Fram 45-47 | Fram sendi Íslandsmeistarana í frí eftir vító
Fram er komið í undanúrslit Íslandsmótsins í handbolta eftir sigur á Haukum eftir vítakastkeppni oddaleik liðanna að Ásvöllum í dag. Lokatölur 47-45 eftir að Fram hafði leitt 14-13 í hálfleik.

Gunnar: Stundum er sportið grimmt
„Ég er orðlaus. Þetta er þungt högg að fá. Ég viðurkenni það. Mikið sjokk,” sagði Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, eftir að Haukar féllu úr leik í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins í handbolta eftir ævintýralegan leik gegn Fram.

Aldrei hefur lið sem endaði jafn neðarlega sent Íslandsmeistarana í sumarfrí
Fram braut blað í sögu úrslitakeppni karla í handbolta þegar liðið vann Íslandsmeistara Hauka, 45-47, í oddaleik í 8-liða úrslitum í gær.

Arnar: Hörmulegt fyrir okkur
Arnar Pétursson, þjálfari ÍBV, var ómyrkur í máli eftir tapið fyrir Val.

Unnu öll fjögur undanúrslitaliðin á síðustu 56 dögum en eru nú úr leik
Karlalið ÍBV í handbolta hefur lokið leik í vetur en Eyjamenn töpuðu fyrir Valsmönnum, 26-27, í oddaleik í 8-liða úrslitum Olís-deildar karla í dag.