Erlent

Tveir létust í skotárás í grunnskóla í Kaliforníu

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Lögregla athafnar sig fyrir utan North Park Elementary í San Bernardino þar sem skotárásin átti sér stað.
Lögregla athafnar sig fyrir utan North Park Elementary í San Bernardino þar sem skotárásin átti sér stað. myndTwitter
Tveir eru látnir og tveir særðir eftir að skotum var hleypt af í grunnskóla í San Bernardino í Kaliforníufylki skömmu fyrir hádegi að staðartíma. Atvikið átti sér stað inni í skólastofu. NBC greinir frá.

Lögregluyfirvöld á staðnum segja hina tvo látnu að öllum líkindum hafa átt í heimiliserjum. Árásarmaðurinn er talinn vera annar þeirra.

Hinir tveir særðu eru sagðir nemendur við skólann. Þeir hafa verið fluttir á sjúkrahús.

Lögregla á svæðinu hefur girt skólann af en segir ekki lengur hættu á ferðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×