Bíó og sjónvarp

Frumsýningardagur Frozen 2 gerður opinber

Atli Ísleifsson skrifar
Systurnar Elsa og Anna snúa aftur árið 2019.
Systurnar Elsa og Anna snúa aftur árið 2019.
Biðin er á enda og við tekur önnur. Disney hefur loks tilkynnt um frumsýningardag Frozen 2, framhaldsmyndar Frozen.

Systurnar Elsa og Anna og félagar þeirra munu snúa aftur þann 27. nóvember 2019. Þetta kemur fram á Twitter-síðu Disney Animation þar sem sjá má stutt myndskeið með snjókarlinum Ólafi.

Disney greindi frá því fyrir um tveimur árum að framhaldsmynd væri í pípunum. Frozen varð gríðarlega vinsæl og halaði inn 1,3 milljarða Bandaríkjadala í kvikmyndahúsum. Myndin vann Óskarsverðlaun fyrir bestu teiknuðu/tölvugerðu mynd og fyrir besta frumsamda lag – Let It Go!

Enn hefur ekkert verið gefið upp um söguþráð framhaldsmyndarinnar, en Peter Del Vecho, framleiðandi myndarinnar, hefur sagt að framhaldsmyndin muni breyta skilningi áhorfenda á fyrstu myndinni.

Staðfest er að þau Idina Menzel, Kristen Bell og Josh Gad munu aftur ljá Elsu, Önnu og Ólafi raddir sínar. Þá er spurning hvort sömu íslensku leikarar tali inn á seinni myndina en það voru þau Ágústa Eva Erlendsdóttir, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir og Bergur Ingólfsson.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.