Sport

Fullt hús í Færeyjum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mjölnismenn kátir eftir kvöldið.
Mjölnismenn kátir eftir kvöldið. mynd/mjölnir/sóllilja baltasarsdóttir
Mjölnismenn fóru í frægðarför til Færeyja þar sem þeir unnu alla sína bardaga í gærkvöldi.

Þetta voru bardagar í MMA-keppni sem kölluð var North Atlantic Fight night.

Þeir sem kepptu fyrir hönd Mjölnis voru Diego Björn Valencia, Bjartur Guðlaugsson, Þorgrímur Þórarinsson og Björn Lúkas Haraldsson en þeir tveir síðastnefndu voru að berjast í fyrsta sinn í MMA-bardaga.

Diego keppti í aðalbardaga kvöldsins sem var atvinnumannabardagi við Shaun Lomas sem átti 90 bardaga að baki. Hinir kepptu eftir áhugamannareglum Alþjóða MMA-sambandsins, IMMAF.

Á Facebook-síðu Mjölnis má sjá alla bardagana frá því í gær.

Diego fagnar eftir sigurinn.mynd/mjölnir/sóllilja baltasarsdóttir
Það var ekkert gefið eftir í Færeyjum.mynd/mjölnir/sóllilja baltasarsdóttir
Björn Lúkas kátur.mynd/mjölnir/sóllilja baltasarsdóttir
Þorgrímur klár í slaginn.mynd/mjölnir/sóllilja baltasarsdóttir
Mjölnismenn fögnuðu en andstæðingarnir voru ansi svekktir.mynd/mjölnir/sóllilja baltasarsdóttir
MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×