Erlent

Kosningaþátttakan í Frakklandi minni en í síðustu kosningum

Atli Ísleifsson skrifar
Kjörstaðir opnuðu klukkan átta að staðartíma.
Kjörstaðir opnuðu klukkan átta að staðartíma. Vísir/afp
Um hádegisbil í Frakklandi höfðu 28,2 prósent kjósenda greitt atkvæði sitt og er þátttakan minni en í síðustu kosningum líkt og spáð hafði verið.

Frakkar kjósa sér í dag nýjan forseta þar sem mun koma í ljós hvort að miðjumaðurinn Emmanuel Macron eða Marine Le Pen, forsetaframbjóðandi Þjóðfylkingarinnar, muni flytja inn í Elyséehöll í París og stjórna landinu næstu fimm árin.

Franska innanríkisráðuneytið birti tölur um þátttöku um hádeigsbil að staðartíma, en til samanburðar höfðu 30,7 prósent kosið á sama tíma í forsetakosningunum 2012 og 34,1 prósent í kosningunum 2007. Í kosningunum 2002 höfðu þó færri kosið á sama tíma, eða 26,2 prósent.

Kjörstaðir opnuðu klukkan átta að staðartíma og verður þeim síðustu lokað klukkan átta í kvöld, eða sex að íslenskum tíma. Fyrstu tölur munu birtast fljótlega eftir lokun kjörstaða.

Nýr forseti mun taka við völdum þann 15. maí næstkomandi.

Skoðanakannanir benda til að Macron muni vinna sigur í kosningunum, en stjórnmálafræðingar telja að Le Pen muni frekar græða á lítilli kosningaþátttöku.


Tengdar fréttir

Le Pen og Macron bæði búin að kjósa

Frakkar ganga að kjörborðinu í dag til að kjósa sér nýjan forseta og hafa frambjóðendurnir tveir sem kosið er um nú báðir greitt atkvæði sitt.

Búið að opna kjörstaði í Frakklandi

Frakkar munu í dag kjósa sér nýjan forseta þar sem kosið er á milli miðjumannsins Emmanuel Macron og Marine Le Pen, forsetaefnis Þjóðfylkingarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×