Fótbolti

Frábær sigur hjá Glódísi og félögum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Glódís Perla í leik með Eskilstuna.
Glódís Perla í leik með Eskilstuna. mynd/eskilstuna
Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur hennar í Eskilstuna United lönduðu sigri, 3-2, gegn stórliði Rosengård í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Eskilstuna komst í 3-0 í leiknum en Rosengård náði að svara fyrir sig. Það var of lítið og of seint en síðara mark liðsins kom tveimur mínútum fyrir leikslok.

Glódís Perla lék allan leikinn fyrir miðri vörn Eskilstuna sem komst upp í þriðja sæti deildarinnar með sigrinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×