Lífið

Útprentuð og eiguleg samsýning

Guðný Hrönn skrifar
Síta og Bergrún eru konurnar á bak við Murder Magazine.
Síta og Bergrún eru konurnar á bak við Murder Magazine. Vísir/Anton Brink
Við gerum í raun allt, frá a til ö, með smá innskotum og hjálp hér og þar. Við fengum svo Auði Önnu Kristjánsdóttur myndlistarkonu með okkur í lið til að sjá um umbrot,“ segir Síta Valrún, sem er stofnandi, ritstjóri og listrænn stjórnandi Murder Magazine ásamt Bergrúnu Önnu Hallsteinsdóttur, spurð út í hverjir komi að gerð tímaritsins.

Síta og Bergrún kynntust í Listaháskóla Íslands en þær stunduðu báðar nám í myndlist og útskrifuðust árið 2015. Hugmyndin að ritinu kviknaði þegar þær voru að skipuleggja samsýningu. „En sú sýning varð aldrei að veruleika en í staðinn varð Murder Magazine til.“

Útkoman er samsafn fjölbreyttra verka eftir fjölda listamanna. „Þetta er vandlega skipulagður vettvangur þar sem ljóð-, myndlistar- og ljósmyndaverkum er fléttað saman.“

Þær lýsa Murder Magazine sem eins konar samsýningu.

„Við vildum búa til eitthvað vandað og fallegt. Eitthvað eigulegt verk sem fólk getur tekið heim til sín, notið og passað upp á. Í rauninni er þetta útprentuð samsýning.“

Verkin sem birtast í tímaritinu eru vandlega valin af Sítu og Berg­rúnu. „Við birtum allt sem á við. Ef við fáum greinar sem passa inn, þá verða þær birtar. En við hugsum tímaritið sem sýningarrými, þannig að það þarf allt ganga upp og virka vel saman, samspilið þarf að skapa einhvern neista og harmoníu.“



Sextán konur og tveir karlarÍ nýjasta tölublaðinu er að finna verk eftir átján listamenn og konur eru í miklum meirihluta. „Þótt það hafi aldrei verið fyrirfram ákveðið þá eru flestir þátttakendanna í þessu tölublaði konur. Það eru sem sagt átján þátttakendur og af þeim eru tveir karlmenn, sem er að okkar mati áhugaverð dýnamík.“

Það liggur vissulega mikil vinna á bak við tímaritaútgáfu en þær Síta og Bergrún stefna á að gefa nýtt tölublað út á þriggja mánaða fresti. Þess má geta að tímaritið fæst t.d. í Bókabúð Máls og menningar og Bismút á Hverfisgötu 82.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.