Svíþjóðardemókratar með meiri stuðning en Hægriflokkurinn 1. júní 2017 10:08 Stefan Löfven, forsætisráðherra og formaður Jafnaðarmanna, og Anna Kinberg-Batra, formaður Moderaterna. Vísir/AFP
Ný könnun sænsku hagstofunnar (SCB) sýnir að sænski Hægriflokkurinn (Moderaterna) hafi misst mest fylgi milli kannanna. 18,1 prósent segjast nú styðja flokkinn, 4,7 prósent færri en í síðustu könnun sem gerð var í nóvember á síðasta ári. Hægriflokkurinn hefur ekki mælst með minni stuðning frá árinu 2003 þegar flokkurinn mældist með 16,8 prósent stuðning. Sama ár lét Bo Lundgren af formennsku í flokknum og Fredrik Reinfeldt tók við. Samkvæmt nýrri könnun SCB er Hægriflokkurinn ekki lengur annar stærstu flokkurinn í Svíþjóð, en fylgi við Svíþjóðardemókrata eykst um 0,9 prósent milli kannanna og segjast nú 18,4 prósent styðja flokkinn. Jafnaðarmannaflokkurinn mælist sem fyrr stærstur eða með 31,1 prósent stuðning, 1,9 prósent meiri en í nóvember 2016. Það eru einnig fleiri en studdu flokkinn í þingkosningunum 2014. Miðflokkurinn heldur áfram að bæta við sig fylgi undir formennsku Annie Lööf og mælist nú með 11,3 prósent fylgi, aukning um 4,2 prósent milli kannanna. Vinstriflokkurinn mælist með 6,3 prósent (-1,4 prósent frá síðustu könnun), Umhverfisflokkurinn 4,5 prósent (sama og í síðustu könnun), Kristilegir demókratar 3,2 prósent (+0,1 prósent) og Frjálslyndi flokkurinn 5,0 prósent (sama og í síðustu könnun). Aðrir flokkar mælast samtals með 2,2 prósent stuðning. SCB birtir kannanir sem þessar tvisvar á ári þar sem úrtakið er stærra en gengur og gerist í skoðanakönnunum. Þingkosningar fara að óbreyttu fram í Svíþjóð síðsumars á næsta ári.
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fólkið sem stýrir kosningavélum flokkanna Innlent Fjölskyldu sakaði ekki þegar íbúð hennar brann Innlent Segir ummæli Trump um konur móðgun við alla Erlent Búa sig undir meiri rigningu og fleiri flóð á Spáni Erlent Staðfest að uppruni E.coli smitsins var hakk frá Kjarnafæði Innlent Hætta á að Grindavík fari í greiðsluþrot Innlent Um átta þúsund norðurkóreskir hermenn á landamærunum Erlent Greiða bætur vegna tækja sem eyðilögðust eða biluðu í rafmagnsleysinu Innlent Þau skipa framboðslista Lýðræðisflokksins Innlent Fleiri fréttir Háttsettur Trump-liði segir RFK hafa sannfært hann um skaðsemi bóluefna Rússar taldir hylja slóð flutningaskipa til að verja olíuhafnir sínar Búa sig undir meiri rigningu og fleiri flóð á Spáni Segir ummæli Trump um konur móðgun við alla Um átta þúsund norðurkóreskir hermenn á landamærunum Horfði á lík fljóta fram hjá Tala látinna á Spáni hækkar Rússar og Íranar auka samstarf í varnarmálum Stórsigur beggja innan skekkjumarka Ný flaug flaug lengra en áður Leita manns sem skildi eftir sprengiefni á lestarstöð í Berlín Sækja hraðar fram í Dónetsk Trump lék ruslakarl í Wisconsin Halda áfram leit eftir eyðileggingu flóðanna Nágranna Erlu enn saknað: „30 bílar bara í hrúgu hérna fyrir utan hjá mér“ Segjast rannsaka ásakanir um kosningasvik í Georgíu Beðin um að tilkynna líkfundi Óttast að hermenn Kim öðlist reynslu af hernaði Sagði Trump heltekinn hefndarvilja Tala látinna á Spáni hækkar hratt Biden í bobba eftir ummæli um rusl Loftvarnir Íran verulega laskaðar eftir árásir helgarinnar „Við getum ekki þrýst á fólk að koma til baka“ Naim Qassem tekur við stjórn Hezbollah Sporvagn af sporinu í Osló og inn í verslun Ákvörðun Ísrael að banna UNRWA vekur reiði og ótta Bæjarstjóri austurrísks bæjar skotinn til bana Jafnaðarmenn í Litháen unnu sigur Vara eindregið við mengun frá gashelluborðum Japanska ríkisstjórnin missti meirihluta sinn Sjá meira