Júlíspá Siggu Kling – Fiskurinn: Hefur hjarta steypireyðarinnar 7. júlí 2017 09:00
Elsku Fiskurinn minn. Þú átt þér svo mikla drauma að þeir geta stundum breyst í martraðir og þú hefur líka svo mikla trú lífinu. Og að sjálfsögðu er það það sem kemur þér langt en líka það sem gerir þig sorgmæddan. En þetta kallast tilfinningar og ef þú værir ekki svona tilfinningaríkur elskaði fólk þig ekki svona mikið. Á einum degi geturðu skartað öllum tilfinningunum, trúað á allt og verða svo brjálaður út í allt og alla, þetta er svolítið álag á hjartað. Þú elskar að vera náttúrusinni, en skammar þig svo ef þú ert ekki fullkominn í því. Ef þú ert að ala upp dýr þá gefurðu þeim lýsi og allt hið náttúrulegasta og besta, þannig hugsarðu líka um börnin þín. En þú dettur svo niður í dýpstu hyldýpi því þú krefst þess að þú sért fullkominn. En þegar þú minnkar kröfurnar verður allt svo miklu léttara. Svo ekki gera kröfur til þess að það sé sól, heldur vertu bara ánægður með að búa á þessu dásamlega landi. Þú ert litríkasta merkið og þarft þar af leiðandi að vera með það á hreinu hvernig ÞÚ vilt að þú sért og ekki kafna í skoðunum annarra , því þá verðurðu ekki sú týpa sem þú elskar að vera. Hvort sem þú ert í Crocs-skóm eða silki, þá berðu það vel því þú ert svo mikil týpa. Þetta sumar er komið til að kalla á þig, til að slaka á, gera hreint ekkert merkilegt heldur næra hugann og skipuleggja ekkert fram í tímann, elska hvatvísina því þá verðurðu ástfanginn af sjálfum þér. Eini makinn sem þú getur elskað er sá sem þú þarft ekki að tipla á tánum í kringum, sem leyfir þér að vera bara algjörlega þú sjálfur. Það er ekkert leiðinlegra en stressaður Fiskur því hann beitir valdi sínu vitlaust og verður ekki hamingjusamur. Eins og þú hefur fallega skapgerð þá getur skapið komið þér í vandræði, en bara ef þú ert hræddur. Þú ert svo trygglyndur við vini þína og þegar þú sérð að þeir eru ekki eins trygglyndir þá tekur þig langan tíma að skilja það. Þú ert svo heiðarlegur að þú skilur ekki óheiðarleika, en lærðu að setja þig í annarra manna spor, í spor þeirra sem eiga erfitt og geta ekki tjáð sig af einlægni eins og þú. Elskaðu þá kosti sem þeir hafa og hentu út neikvæðu pólunum hjá þeim. Þú ert ástríkasta merkið en þar af leiðandi geturðu oft orðið daprasti fiskurinn því þú átt erfitt með að skilja að fólk sé ekki eins og þú. Þú hefur hjarta steypireyðarinnar sem er stærsti fiskurinn í sjónum og kæti gullfisksins sem gleður alla. Sumir segja þó að gullfiskurinn hafi ekkert minni og það er best fyrir þig að reyna að líkjast honum, allavega þegar um leiðinlegan gjörning er að ræða. Þú hatar leti en ef þú skoðar í kringum þig finnst öllum í kringum þig þú vera duglegur. Ef þú vilt ást og ert ekki í sambandi þá skaltu ekki leita því ástin mun finna þig á hárréttum tíma af því að þú ert demantur í mannsorpinu. Mottóið þitt er: Enginn getur látið þér líða illa nema þú leyfir það. Ást og friður, Sigga KlingFrægir Fiskar: Elísabet Ásberg listamaður, Beggi hans Pacasar, Baltasar Kormákur leikstjóri, Díana Ómel fjöllistakona, Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður, Albert Einstein, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, Vigdís Hauksdóttir þingkona, Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, Svavar Örn engill, Páll Óskar poppstjarna, Katla Sign og Baby Kling, Lína Rut listaperla.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Þjóðin tjáir sig: Fáránlegt fyrirkomulag, stjörnutúlkar og skortur á menningarlæsi Lífið Lifðu af tvö flugslys sama daginn á Mosfellsheiði Lífið Lærði mikið af öllu hatrinu Lífið Ísland í næstneðsta sæti veðbankanna Lífið „Trylltur þynnkuborgari“ slær í gegn á Íslandi og í Svíþjóð Lífið Myndaveisla: Spennustigið óbærilegt þegar VÆB unnu Söngvakeppnina Lífið Krakkatían: Toy Story, risaeðlur og spænska Lífið VÆB keppa fyrir hönd Íslands í Eurovision Lífið Tveggja barna miðaldra móðir sem er sjúk í strákinn Gagnrýni Tvíburabræður með myndlistarsýningu Menning Fleiri fréttir Ísland í næstneðsta sæti veðbankanna Krakkatían: Toy Story, risaeðlur og spænska Lærði mikið af öllu hatrinu Lifðu af tvö flugslys sama daginn á Mosfellsheiði Þjóðin tjáir sig: Fáránlegt fyrirkomulag, stjörnutúlkar og skortur á menningarlæsi Myndaveisla: Spennustigið óbærilegt þegar VÆB unnu Söngvakeppnina VÆB keppa fyrir hönd Íslands í Eurovision „Trylltur þynnkuborgari“ slær í gegn á Íslandi og í Svíþjóð Fréttatía vikunnar: Tenerife, kúabú og KFC Alec Baldwin með áfallastreituröskun: „Ég er glaðari þegar ég sef“ Snúist ekkert um hvort börnin eigi íslenska eða erlenda foreldra „Jákvæð líkamsímynd bjargaði lífi mínu“ Franskur stíll í Sigvaldahúsi í Álfheimum Uppselt á Noruh Jones á nokkrum mínútum Bryan Adams seldi upp á hálftíma Laufey ein af konum ársins hjá Time Skotheldar hugmyndir fyrir konudaginn Stórfjölskyldan setur húsið á sölu Margt breyst í leiðsöguferðum á Breiðamerkurjökli eftir banaslysið Heiðrar minningu systur sinnar: „Ég elska þig meira en sólina“ María og Ingileif gjörbreyttu 150 fermetra parhúsi í Vesturbænum fyrir fimm milljónir „Þetta var orðið svolítið hættulegt fyrir mig“ Opnar fyrsta kynlífsklúbbinn á Íslandi Addison Rae á Íslandi Eva sýnir giftingahringinn Helga Lind selur sjarmerandi íbúð í hjarta miðborgarinnar Traustið var löngu farið úr sambandinu Stjarnanna borg á fjalirnar hjá Verzló Við getum gert fullt til að draga úr líkum á heilabilun Uppskrift að umræddasta súkkulaði landsins Sjá meira