Lacazette verður sá dýrasti í sögu Arsenal Tómas Þór Þórðarson skrifar 3. júlí 2017 12:30 Alexandre Lacazette skorar og skorar. vísir/getty
Franski framherjinn Alexandre Lacazette gengur í raðir Arsenal í dag eða á morgun en þetta staðfestir Jean-Michel Aulas, forseti Lyon. Samningaviðræður félaganna hafa staðið yfir í nokkrar vikur en Lyon hafnaði fyrsta tilboði Arsenal sem hljóðaði upp á 39 milljónir punda. Talið er að Arsenal borgi 43,8 milljónir punda fyrir franska markahrókinn sem þýðir að hann verður dýrasti leikmaður í sögu félagsins. Mest hefur félagið borgað 42,5 milljónir punda fyrir Mesut Özil fyrir fjórum árum síðan. „Salan á Alexandre Lacazette til Arsenal ætti að ganga í gegn í dag eða á morgun. Þessar 67 milljónir evra sem fjölmiðlar töluðu um fyrst er út úr korti. Þetta verður sala upp á 45-50 milljónir evra,“ segir Aulas við franska miðilinn Le Progres. „Þetta verða dýrustu kaup Arsenal og hæsta verð sem Lyon hefur selt leikmann fyrir,“ segir Jean-Michel Aulas. Arsenal datt í lukkupottinn fyrr í sumar þegar Alþjóðaíþróttadómstóllinn úrskurðaði Atlético Madrid í félagaskiptabann því Alexandre Lacazette var búinn að semja munnlega við spænska félagið. Lacazette skoraði 28 mörk og lagði upp önnur þrjú í frönsku 1. deildinni á síðsutu leiktíð en í heildina skoraði hann 37 mörk í 45 leikjum í öllum keppnum.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Rakel María er hætt en fjórtán eru enn að hlaupa Sport Skiptar skoðanir á nýju merki Njarðvíkur Körfubolti „Hún er hjartað og lungað í liðinu“ Körfubolti Dagskráin í dag: Botnslagir í Bestu Sport Grizzlies semja við lágvaxnasta leikmann NBA deildarinnar Körfubolti Sjáðu sigurmarkið sem dæmt var af Skagamönnum Fótbolti Komin aftur á völlinn þremur mánuðum eftir barnsburð Handbolti „Gæti verið minn síðasti leikur á laugardaginn“ Íslenski boltinn Íslenska ofurfólkið sem keppir á HM í bakgarðshlaupi Sport Ásta og Laufey valdar í úrvalslið EM Sport Fleiri fréttir Everton vann og endurkomusigrar hjá Leicester og Villa Arsenal mistókst að koma sér á toppinn Langþráð og laglegt mark Höjlund tryggði Man. Utd sigurinn Willum Þór með mikilvægt mark í endurkomusigri Þrjú mörk á sjö mínútum í sannfærandi sigri Spurs Eigandinn þuklaði á fyrirliða kvennaliðsins Í leyfi eftir að hafa misst fjögurra mánaða afabarn „Ævintýri og lygar í boði sumra ykkar“ Mainoo frá í nokkrar vikur Ræddu við tíu en fáir kannast við símtal Vilja prófa að leyfa áfengi á kvennaleikjum í Englandi Pogba segir að danssagan sé lygi Beckham sárnar hvernig fólk lítur á ferilinn hans Labbar mest af öllum í ensku úrvalsdeildinni Allt bendir til þess að Liverpool missi Trent í sumar Eiginkona Kyle Walker sækir um skilnað Neville um Tuchel: „Ákveðin vonbrigði“ Sir Alex bannað að fara inn í klefann eftir leiki Tuchel skrifaði undir samninginn fyrir átta dögum Æfur út í eigendur Man. Utd: „Hendi þeim öllum í risapoka af skít“ Tuchel tekur við enska landsliðinu Stjóri Arsenal sagði upp eftir slaka byrjun Sir Alex slapp ekki við niðurskurðarhnífinn hjá Man. United Stjóri Stuttgart hafnaði United Dagný kom við sögu í jafntefli West Ham Saka hefði getað spilað gegn Finnum Salah farinn heim til Liverpool: Ofbeldisfullir andstæðingar og hættulegur völlur Síðasta tímabil Haaland með Manchester City? Hlerunarbúnaður í klefa United á Villa Park tók upp ræður Ten Hag Jason lagði upp í sigri gegn liði 92-árgangsins Sjá meira