Erlent

Skotárás á tónleikum í Bandaríkjunum

Ingvar Þór Björnsson og Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Little Rock í Arkansas
Little Rock í Arkansas
Að minnsta kosti tuttugu og fimm særðust í skotárás á skemmtistaðnum „Power Ultra Lounge“ í Arkansas í nótt.

Fyrst var talið að eitt fórnarlambanna væri í lífshættu en BBC greinir frá því að líðanin sé nú stöðug.

Að sögn lögreglu var um að ræða ósætti á tónleikum en rapparinn Finese 2Tymes kom fram á staðnum. Það hafi endað með því að tuttugu og átta særðust. Tuttugu og fimm þeirra hlutu skotsár.

Yngsta fórnarlambið er aðeins sextán ára að aldri. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×