Dani Alves valdi PSG og kemur því ekki í Laugardalinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. júlí 2017 14:30 Dani Alves fagnar ítalska meistaratitlinum með Juventus. Hann hefur orðið sjö sinnum meistari á síðustu níu árum. Vísir/Getty
Brasilíski bakvörðurinn Dani Alves mun ekki spila í ensku úrvalsdeildinni á komandi tímabili eins og stefndi í fyrr í sumar. Dani Alves valdi frekar að semja við franska félagið Paris St-Germain og mun því ekki spila aftur fyrir Pep Guardiola en þeir unnu saman í mörg ár hjá Barcelona. Manchester City bauð Dani Alves tveggja ára samning en var ekki tilbúið að borga honum 230 þúsund pund í vikulaun eins og Parísarliðið. Frakkarnir tvöfölduðu launatilboð City og stálu honum af enska liðinu. BBC segir frá. Íslendingar fá því ekki að sjá Dani Alves í Laugardalnum föstudaginn 2. ágúst næstkomandi þegar Manchester City og West Ham mætast á Laugardalsvelli í síðasta æfingaleik sínum fyrir tímabilið. Manchester City er því enn á höttunum eftir hægri bakverði en bæði Pablo Zabaleta og Bacary Sagna yfirgáfu félagið í sumar. Eftir að Dani Alves gaf afsvar þá er Tottenham-maðurinn Kyle Walker efstur á óskalistanum hjá Manchester City. Dani Alves lék með Juventus á síðustu leiktíð en var laus allra mála og gat því samið við hvaða lið sem er. Hann vann tvo titla með Juve í vor og er orðinn einn sigursælasti leikmaður allra tíma. Dani Alves varð meðal annars sex sinnum spænskur meistari á átta tímabilum með Barcelona og hann vann Meistaradeildina líka þrisvar sinnum með Börsungum.
Enski boltinn Mest lesið Schumacher sást meðal fólks í fyrsta sinn í ellefu ár Formúla 1 Tók einn og hálfan tíma að finna ungu hjólreiðakonuna sem lést Sport Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Enski boltinn Margbrotnaði á andliti, gæti verið dofinn fyrir lífstíð en ætlar að spila áfram Sport Sakar leikmenn United um leti á æfingum Enski boltinn Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Enski boltinn „Okkur fannst það skylda að klára með sigri“ Körfubolti Ljónagryfjan kvödd: „Hérna var sagan skrifuð“ Körfubolti GAZið: „Ætla að reyna aðeins meira á mig“ Körfubolti Dagskráin í dag: Meistaradeild Evrópu og Bónus deild kvenna Sport Fleiri fréttir Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Sakar leikmenn United um leti á æfingum Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Rauða spjaldið hans Bruno dregið til baka Scholes brjálaður: De Ligt geti ekkert og ten Hag þjálfi liðið varla Fyrirliðinn segir Íslendingaliðið of gott fyrir C-deildina Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Dómarinn fyrrverandi segir Bruno hafa átt að fá gult Leikmenn láta í sér heyra: „Við erum í hættu“ Liverpool ekki meistaraefni: „Eru langt á eftir City og Arsenal“ Spilar ekki í deildinni fyrr en í nóvember Ten Hag verði ekki rekinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Dagný fékk gult þegar Hamrarnir nældu í sitt fyrsta stig Delap bjargaði stigi fyrir nýliðina Tottenham lék tíu United-menn grátt Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Arsenal skaut Refina í blálokin Palmer skoraði fernu í fyrri hálfleik Liverpool á toppnum „Við tökum stiginu“ Vandræði Man City án Rodri halda áfram Stuðningsmaður safnað milljónum eftir að völlur félagsins skemmdist Markvarslan Alisson í blóð borin Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Sjá meira