Fótbolti

Paris Saint Germain vann Monaco í franska ofurbikarnum

Elías Orri Njarðarson skrifar
Dani Alves og félagar í PSG sigruðu Monaco í kvöld
Dani Alves og félagar í PSG sigruðu Monaco í kvöld visir/getty
Paris Saint Germain sigraði Monaco, 1-2, í leik um franska ofurbikarinn.

Bæði lið stilltu upp sterkum byrjunarliðum enda titill í húfi. Bæði lið voru með nýja menn í byrjunarliðum en til dæmis var Dani Alves í framlínu PSG og Youri Tielemans var á miðjunni hjá Monaco.

Leikurinn var jafn framan af en Dijbril Sidibe braut ísinn þegar hann kom Monaco yfir eftir 30. mínútna leik eftir sendingu frá Youri Tielemans.

Monaco fór með eins marks forskot til búningsklefanna þegar að blásið var til loka fyrri hálfleiks.

Þegar að sex mínútur voru búnar af síðari hálfleiknum jafnaði Dani Alves metin úr aukaspyrnu.

Hann var svo aftur á ferðinni á 63. mínútu þegar að hann lagði upp mark Adrien Rabiot og PSG komið yfir í leiknum, 1-2.

Lið PSG var miklu meira með boltann og fengu góð færi til þess að auka forskot sitt en fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum og 1-2 sigur PSG á Monaco staðreynd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×