„Hvorki þú, lögfræðingur þinn, né vanhugsuð lög geta þaggað niður í okkur“ Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 29. júlí 2017 17:42 Konurnar sem stigu fram og sögðu Robert Downey hafa brotið á sér voru á meðal þeirra sem leiddu Druslugönguna í ár. Vísir/Laufey Elíasdóttir „
Þú rændir okkur æskunni, þú rændir okkur frelsinu. Þetta eru okkar líf og okkar saga. Hvorki þú, lögfræðingur þinn, né vanhugsuð lög geta þaggað niður í okkur. Við eigum þessa sögu. Við eigum okkur sjálfar. Við erum frjálsar.“ Svona hljóma upphafsorðin í ræðu þeirra Önnu Katrínu Snorradóttur, Höllu Ólöfu Jónsdóttur, Glódísar Töru og Nínu Rúnar Bergsdóttur sem flutt var við mikið lófaklapp að aflokinni Druslugöngu. Nína Rún Bergsdóttir var að vísu ekki viðstödd því hún var erlendis en hún tók þátt í að skrifa ræðuna.Fjölmenni var á Druslugöngunni sem er orðinn árviss viðburður með það að markmiði að valdefla þolendur kynferðisofbeldis.Vísir/Laufey ElíasdóttirRobert Downey hlaut uppreist æru í júní Konurnar hafa allar stigið fram og sagst hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi af hendi sama mannsins. Málið fór hátt í sumar vegna þess að Hæstiréttur féllst á það í júní að svipting lögmannsréttinda kynferðisbrotamannsins Roberts Downey, sem áður hét Róbert Árni Hreiðarsson, yrði felld niður og því fær hann að halda réttindum sínum til að vera héraðsdómslögmaður. Robert hafði áður verið dæmdur í Hæstarétti í þriggja ára fangelsi árið 2008 fyrir kynferðisbrot gegn fjórum unglingsstúlkum og hafði héraðsdómur áður einnig fallist á beiðni hans um að hann fengi lögmannsréttindin aftur. Skilaboðin í Druslugöngunni voru skýr: Við eigum okkur sjálfVísir/Laufey ElíasdóttirLáta ekki þagga niður í sér Á Austurvelli í dag skiptust konurnar á að lesa ræðu sem þær sömdu saman. Þær segjast vilja hafa hátt öðrum til varnaðar. “Við ætlum okkur að yfirstíga þær hindranir sem þú settir í líf okkar og hluti af því er að koma í veg fyrir að að þú gerir nokkurri manneskju slíkt aftur. Við ætlum að halda áfram að öskra, æpa, stappa niður fótum og veifa höndum,“ segja konurnar. Þær segjast ekki geta sætt sig við hvernig staðið var að því að maðurinn fékk uppreist æru. „Við getum engan veginn sætt okkur við það að þú hafir aldrei viðurkennt að hafa gert nokkuð rangt og starfir - með því viðhorfi - við að framfylgja lögum landsins,“ segja konurnar.Þátttakendur Druslugöngunnar vilja knýja fram breytingar.Vísir/Laufey ElíasdóttirSegja manninn hafa rofið eðlilegt þroskaferli Konurnar lýsa fyrir þátttakendum Druslugöngunnar þeim skammtíma- og langtímaáhrifum sem hlutust af kynferðisofbeldinu sem þær urðu fyrir. „Með úthugsuðum og lævísum hætti rændirðu okkur getunni til að treysta. Okkar æðsta takmark var að finna jafningja sem við gætum treyst fyrir líf okkar og limum. Þú vissir það og lékst þér að okkur eins og brúðumeistari sem veigraði sér ekki við að nota sín eigin börn sem tálmyndir og braust þar með á þeim líka. Þú fékkst okkur til að efast um hvað væri satt og rétt. Þú raufst eðlilegt þroskaferli okkar. Gjörðir þínar urðu til þess að við óttuðumst að eignast börn,“ segja konurnar. Beina spjótum sínum að stjórnvöldumÍ ræðunni beina konurnar orðum sínum valdhöfum og þeim sem sækjast eftir valdi: „Þið eigið að ganga í lið með okkur. Þið eigið að velja réttlæti og gott samfélag þar sem ofbeldi er ekki liðið.“ Þær segja auk þess að það sé ekki nóg að passa að lögin séu í lagi heldur sé brýnt að passað sé upp á að þau séu rétt framkvæmd. Konurnar segja að það sé þeim ekki samboðið hvernig staðið var að málum: „Virðing okkar felst ekki í fjórum stöðluðum spurningum og undirskriftum fjögurra valinkunnra manna og þar af tveimur leynilegum. Við erum stærri, merkilegri og mikilvægari en það. Við erum framtíð þessa lands.“ „Höfum rosalega hátt!“ Konurnar gera það að lokaorðum sínum að brýna fyrir almenningi að gera það hluta að samfélagssáttmálanum að kynferðisofbeldi sé aldrei í lagi. „Höfum rosalega hátt!“ segja konurnar í kór að lokum.
Mest lesið Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Innlent Vefmyndavél Vísis á Reykjanesskaganum Innlent Þreyttur á áreiti og selur Tesluna fyrir slikk Innlent Samþykki annarra verði ekki lengur skilyrði fyrir hunda- og kattahaldi Innlent Regnbogafánar bannaðir í skólum og ríkisstofnunum Erlent Gestir vaktir og Bláa lónið rýmt í snatri Innlent Færri ánægðir með Trump og efnahagsmálin Erlent Síður með ofbeldi barna spretti upp eins og gorkúlur Innlent Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Innlent Orkuveitan vill reisa fimmtán vindmyllur Innlent Fleiri fréttir Vonast til að hefja störf í Grindavík strax á morgun Sterkari merki en fyrir síðustu eldgos Bein útsending: Ræða skýrslu fjármálastöðugleikanefndar Gestir vaktir og Bláa lónið rýmt í snatri Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Þreyttur á áreiti og selur Tesluna fyrir slikk Samþykki annarra verði ekki lengur skilyrði fyrir hunda- og kattahaldi Tók upp hníf eftir útistöður við mann á hóteli Síður með ofbeldi barna spretti upp eins og gorkúlur Orkuveitan vill reisa fimmtán vindmyllur Nemendur Vallaskóla í þremur fyrstu sætunum í Stóru upplestrarkeppninni Ætla að bæta þjónustu en störfum fækki í einhverjum tilvikum Nýtt gervigreindaræði vekur upp spurningar um höfundarétt Taka fyrir afnám réttinda grásleppusjómanna Fyrstu hundrað dagar ríkisstjórnarinnar og gervigreindaræði Efling ungmennastarfs í Breiðholti meðal aðgerða „Allt að því hroki eða yfirlæti“ að tala um reynsluleysi „Hér er verið að saka fólk um alvarlega þætti“ Banaslys á Suðurlandsvegi eftir grjóthrun Skipar stýrihóp um áfengis- og vímuefnameðferð „Ég vil að þú sért alltaf með farða, annars sjást bólurnar þínar“ Vilja úthýsa einkaþotum og þyrlum Hvetja landsmenn til að búa sig undir neyðarástand Björn hvergi af baki dottinn Sjór gekk yfir fjárhús í Vík og allt á floti Suðurlandsvegi lokað vegna alvarlegs slyss Hveitibrauðsdögunum lokið: Ríkisstjórnin pólitískt stórtækari en von var á Menningarslys verði frumvarpið samþykkt Spyr um ábyrgð skólastjóra í stóra skómálinu Segir ÍR að slökkva á skiltinu Sjá meira