Fótbolti

Viðar með þrennu í sigri Maccabi Tel Aviv

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Viðar í leik með Maccabi Tel Aviv gegn KR fyrr í sumar.
Viðar í leik með Maccabi Tel Aviv gegn KR fyrr í sumar. vísir/andri marinó
Viðar Örn Kjartansson skoraði öll þrjú mörk Maccabi Tel Aviv í 0-3 útisigri á Maccabi Petah Tikva í ísraelska deildabikarsins í kvöld.

Viðar og félagar eru á toppi síns riðils með sjö stig eftir þrjá leiki.

Viðar kom Maccabi yfir á 9. mínútu og bætti svo öðru marki við átta mínútum síðar. Selfyssingurinn fullkomnaði svo þrennuna á 56. mínútu.

Viðar er kominn með fimm mörk á tímabilinu; þrjú í deildabikarnum og tvö í Evrópudeildinni.

Ísraelska úrvalsdeildin hefst um þarnæstu helgi. Þá mætir Maccabi Beitar Jerusalem.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×