Tottenham fær alltaf 72 tíma til að jafna tilboð frá Man. United í Bale Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. ágúst 2017 15:15 Gareth Bale Vísir/Getty
Enska úrvalsdeildarliðið Manchester United hefur lengi haft mikill áhuga á að fá til sín Gareth Bale og enskir miðlar eru duglegir að orða velsku súperstjörnuna við United. Mirror segir frá því að það sé ekki bara nóg fyrir Manchester United að sannfæra Real Madrid um að selja Bale. Málið er aðeins flóknara en það sé velski landsliðsmaðurinn aftur á leiðinni í ensku úrvalsdeildina. Real Madrid keypti frá Tottenham fyrir 85 milljónir punda á sínum tíma en stjórnarformaðurinn Daniel Levy hafði vit á því að koma áhugaverðri klausu inn í samninginn. Samkvæmt heimildum Mirror þá fær Tottenham alltaf 72 tíma til að jafna tilboð frá öðru liði í ensku úrvalsdeildinni. Manchester United þarf því alltaf að bíða í þrjá sólarhringa eftir því hvað Tottenham gerir fari svo að United nái saman um kaupverð við Real Madrid. Gareth Bale er 28 ára gamall og að fara að hefja sitt fimmta tímabil hjá Real Madrid. Hann hefur aldrei komið að jafnfáum mörkum í spænsku úrvalsdeildinni og í fyrra (7 mörk og 3 stoðsendingar í 19 leikjum) en Bale var þá mikið meiddur. Tímabilið 2015-16 þá kom Bale að 30 mörkum í 23 leikjum í spænsku deildinni, skoraði 19 mörk sjálfur og gaf 11 stoðsendingar. Hann hefur alls skorað 54 mörk og gefið 36 stoðsendingar í 100 deildarleikjum með Real Madrid.
Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið Valsmenn neituðu að veita viðtöl Körfubolti Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó Íslenski boltinn Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ Fótbolti „Ábyrgðin er mín“ Fótbolti Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Enski boltinn Óska eftir handtökum vegna herferðar gegn Vinicius Fótbolti „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Körfubolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu deild karla og málin gerð upp í Bestu mörkunum Sport KSÍ sækir um í Afrekssjóð ÍSÍ fyrir næsta ár Fótbolti Lélegasta lið sögunnar: „Augljóslega er þetta ömurlegt“ Sport Fleiri fréttir Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Arsenal skaut Refina í blálokin Palmer skoraði fernu í fyrri hálfleik Liverpool á toppnum „Við tökum stiginu“ Vandræði Man City án Rodri halda áfram Stuðningsmaður safnað milljónum eftir að völlur félagsins skemmdist Markvarslan Alisson í blóð borin Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Sjá meira