Ágústspá Siggu Kling - Bogmaðurinn: Nýtur þess af allri sálu þinni að elska 4. ágúst 2017 09:00
Elsku Bogmaðurinn minn, þegar þú ert ákveðinn og sýnir ákefð við að gera og breyta í kringum þig þá færðu flesta í lið með þér, en þegar þú sérð að þú þarft að gera flestalla hluti sjálfur og enginn er tilbúinn til að ýta þér áfram þá missirðu kraftinn. Ég hef skrifað tvær bækur; Orð eru álög sem varð metsölubók og Töfraðu fram lífið sem varð ekki metsölubók, en þá keypti ég þúsund eintök af henni, og þá varð hún metsölubók. Þetta segir þér að þú þarft að treysta á þig og þínar hugmyndir og koma þér áfram af sjálfsdáðum, það er eina leiðin. Þú nýtur þess af allri sálu þinni að elska og markmið þitt er stundum að reyna að breyta þeim sem eru í kringum þig til þess að líf þeirra verði auðveldara og þar af leiðandi auðvitað þitt líka. En það er algerlega óvinnandi verkefni að breyta öðrum svo slepptu þeim persónum sem þú vilt breyta og leyfðu þeim að vera það sem þær vilja og elskaðu bara þá sem heilla þig og lokaðu á gallana. Þessi skemmtilegi tími sem þú ert að fara inn í núna kennir þér að eflast og sýna öðrum hver er hinn sanni þú. Þú skorar á sjálfan þig að virkja líkamann og hugann og þú færð aukakraft til þess að búa til hina bestu útgáfu af þér. Þú hefur ofurnæman skilning á fólkinu sem þú elskar því þú hefur þann hæfileika að geta lesið í táknmál líkamans og þar af leiðandi ert þú ráðgjafi margra. Þú þolir alls ekki yfirborðskennd samskipti. Þótt þú elskir fjölbreytni og smá fjör í ástinni þá gerirðu þá kröfu að ástin sé hrein og bein og engir leikir séu til staðar. Þið sem eruð á lausu eigið eftir að opnast meira og meira fyrir því að heiðarlegt samband sé það besta fyrir ykkur, en þú gefst upp eins og skot ef það er verið að ljúga að þér eða leika sér að þér og afar margir í þínu merki munu finna ástina svo sanna og svo rétta. Hins vegar getur verið dálítill óróleiki hjá þeim sem eru í sambandi og pirringur. Hugsaðu þá til baka og skoðaðu af hverju þú varðst ástfanginn af þessum einstaklingi, andaðu að þér þeim tilfinningum því tilfinningar eyðast aldrei, þær bara gleymast. Með þínum ólýsanlegu persónutöfrum nærðu fram árangri til að leiðrétta kjör þín og koma öllu í jafnvægi. Ótrúlega góður tími er fram undan, þú ert að fara í rennibraut og þó þú vitir ekki alveg hvar hún endar eða hversu hratt þú ferð, slakaðu þá bara á og leyfðu því að gerast sem gerist. Setningin þín er: Stólaðu á mig (Lean on me - Bill Withers)Frægir Bogmenn: Ingvar E. Sigurðsson leikari, Björgvin Franz Gíslason leikari, Edda Heiðrún Backman leikkona, Regína Ósk Óskarsdóttir söngkona, Sigrún í Gyðja Collection, Steindi, Bryndís Ásmundsdóttir, leik- og söngkona, Jóhanna Vilhjálmsdóttir, fjallkona og leikkona, Logi Bergmann Eiðsson sjónvarpsmaður, Jói á Fabrikkunni, Sigga Dögg kynfræðingur, Hemmi, hársnillingur á Módus, Lovísa, hönnuður hjá Kjólar og konfekt.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Maggie Smith er látin Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Lífið Í hnapphelduna með krókódílamanninum Lífið Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Lífið Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Lífið Fleiri fréttir Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Svona undirbýr Bogi sig fyrir útsendingu Ekkert mál að hlaupa alveg staurblindur Sjá meira