Lífið

Leggur löggubúningnum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Þorgrímur Óli hefur hingað til unnið fullan vinnudag en nú tekur við frí til framtíðar.
Þorgrímur Óli hefur hingað til unnið fullan vinnudag en nú tekur við frí til framtíðar. Vísir/Magnús Hlynur Hreiðarsson
„Mér líður vel. Ég lít svo á að ég sé að fara í sumarfrí en það verður kannski dálítið langt,“ segir Þorgrímur Óli Sigurðsson sem vann sinn síðasta vinnudag í gær sem lögreglumaður á Suðurlandi eftir rúm 35 ár í embætti.

„Samkvæmt lögum ber lögreglumönnum að hætta þegar þeir verða 65 ára og það afmæli átti ég 24. júlí. Nú tekur framtíðin við. Ég ætla að láta hana koma til mín. Það er bara tilhlökkun að takast á við nýtt.“

Þorgrímur Óli á einbýlishús á Selfossi með trjágarði og meira að segja strönd við Ölfusána.

„Ég er ekkill en með konu, svo á ég börn og barnabörn sem búsett eru í Reykjavík og það fer einhver tími í að heimsækja þau,“ segir hann þegar forvitnast er um fjölskyldu- og áhugamál.

„Svo taka líka við lengri ferðalög. Ég hef frá 1971 haft áhuga á að heimsækja Japan og sá draumur er að verða að veruleika í október. Vann með Japönum við niðursetningu á túrbínum í Búrfellsvirkjun og áhuginn vaknaði á þeirra heimalandi. Ég var á Kúbu um síðustu páska og Ísrael í fyrrahaust. Maður verður á þessari línu – að kanna nýjar lendur,“ segir Þorgrímur Óli hress.

Hann hefur verið í fullu starfi frá apríl 1982, lengst af í rannsóknardeild og aðstoðaryfirlögregluþjónn síðustu tíu árin – upp á dag. Er honum eitthvað minnisstæðara en annað frá ferlinum?

„Það var sérstakt verkefni sem við fengum fyrir nokkrum árum þegar okkur var falið að grafa skákmeistarann Bobby Fischer upp til að nálgast lífsýni úr honum út af barnsfaðernismáli. Það var mjög sérstök tilfinning sem fylgdi því.“ 

Magnús Hlynur Hreiðarsson ræddi við hann á lögreglustöðinni á Selfossi í gær, í tilefni dagsins, og má sjá viðtalið hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.