
Júlídeilan
„Enn eitt dæmið…“
Júlídeilan getur snúist um hundahald, lambakjöt, stafsetningu, göngugötur, lúpínu, lausagöngu katta – nánast hvaðeina. Deilan er jafnan marglaga; og snýst oft um eitthvað annað en hún er um; iðulega er hún um eitthvað sem aldrei er nefnt, kannski jafn einfaldan hlut og gagnkvæma andúð.
Stundum liggur djúp sprunga undir ágreiningsefninu: sjálfsmynd þjóðar, sveit gegn borg, fyrirkomulag atvinnulífsins. Og auðvitað liggur þarna að baki ágreiningur um það hvernig Íslendingar sjá sig sem þjóð meðal þjóða; hvað tíðkast hjá öðrum þjóðum – sem er þá algild mælistika á rétt og rangt: „Aðrar þjóðir hafa þetta ekki svona,“ segir þá einhver ábúðarmikil rödd og við hin kinkum þá óðara kolli yfir því og sjáum undir eins að þetta getur ekki gengið svona.
Júlídeilan er oft um umhugsunarverð og jafnvel skemmtileg efni en hún er háð af heift, ágreiningur er dreginn fram og pússaður af alúð og natni og reynt er að sneyða hjá framsetningu sem kynni að leiða til sameiginlegrar niðurstöðu, ekki síst með þeirri aðferð að hafa sjálfan samræðugrundvöllinn síkvikan. Umfram allt þarf maður að hafa mjög ákveðna en um leið óljósa skoðun. Maður þarf að setja hana fram á umbúðarlausan og ögrandi hátt, helst með dálitlum skammti af skætingi. Allir þátttakendur umræðunnar eru sárhneykslaðir: hver á öðrum, á málefninu, á því „hvernig þetta er alltaf hreint hérna hjá okkur“, á því hvernig viðkomandi mál er „enn eitt dæmið“ um eitthvað sem er ekki gott – að ógleymdri „íslenskri umræðuhefð“. Alltaf er vitnað í kaflann í Innansveitarkróniku um hana og hinn aðilinn talinn sá sem setur hljóðan þegar kemur að kjarna málsins.
Að afstaðinni deilu verða allir aðilar svolítið kindarlegir, eins og fólk sem hefur gert einhvern óskunda á fylliríi en man ekki fyllilega hvað það var. Ágúst er þá notaður til að jafna sig áður en siglt er inn í september, og vinnuna.
Veggurinn
Að þessu sinni snerist Júlídeilan um vegg á Skúlagötu fjögur. Rokkhátíð sem kennir sig við íslenskar öldur ljósvakans stóð fyrir því fyrir nokkrum árum að máluð var mynd á þennan vegg af sjómanni, sem var skemmtilegt framtak og vel við hæfi, enda húsið í seinni tíð verið athvarf fyrir alls konar umsýslu sem tengist sjávarútvegi. Sjálfur tengi ég þó húsið ævinlega við starfsemi Ríkisútvarpsins og þá einkum Fréttastofuna þar sem móðir mín vann. Mér hefði því fundist fara vel á mynd af henni á téðum vegg og Ragnheiði Ástu og Jóni Múla. En sjómaður var það. Svo var málað yfir myndina.
Einhvern veginn kvisaðist að íbúi þar í grennd, Hjörleifur Guttormsson, hefði ítrekað kvartað til borgaryfirvalda vegna myndarinnar, vitnað í alls konar pergament og paragrafa af sinni alkunnu málafylgju og krafist þess að myndin yrði fjarlægð.
Fólk dró þá ályktun að hin deiga borgarstjórn hefði orðið við umleitunum Hjörleifs og varð málið fljótlega í huga margra að „enn einu dæminu“. Þetta var dæmi um eftirlátssama borgarstjórn – um bannóða borgarstjórn – um áhrif og völd frekra karla; bannáráttu gamalla kommúnista sem ekki vilja lit og líf í samfélaginu heldur bara gráma og einhæfni. Hjörleifur svaraði fullum hálsi og beindi spjótum sínum einkum að fréttastofu Ríkisútvarpsins, sennilega vegna þess að hann skrifaði í Moggann og hefur talið sig þurfa að næra hina landskunnu þráhyggju ritstjórans um téða fréttastofu.
Allt logaði á Facebook og twitter lækóhólistarnir þar kepptust við að skrifa sem hnyttnasta statusa um Hjörleif, sem hafði svo sem ekki gert annað en að nýta sér borgaraleg réttindi sín og kvarta yfir því sem honum þótti miður fara. Skyndilega var skollin á sígild Júlídeila, þar sem öllum var mjög heitt í hamsi og skothríðin dundi úr öllum hornum – og í öll horn. Málið var „enn eitt dæmið“. Fólk skiptist í fylkingar eftir því hvort því þótti viðkomandi mynd falleg eða ljót, smekklaus eða verðugur minnisvarði. Sumir töldu að þarna kæmi fram andúð fulltrúa gilda hins gamla sveitasamfélags á táknmynd sjávarútvegsins sem gegnum aldirnar hefði einn skapað verðmæti hér á landi. Aðrir sáu málið sem tilraun valdsins til að binda hina skapandi hönd og hefta tjáningarfrelsið. Enn aðrir töldu veggmyndina listrænan átroðning og særandi fyrir fegurðarskyn þess sem mátti daglega horfa upp á þessa fyrirmunun. Allir sem tóku til máls töluðu um „enn eitt dæmið“.
Smám saman hljóðnaði svo deilan og fólk varð uppiskroppa með ný ádeiluefni varðandi þessa lítilfjörlegu mynd og Hjörleif. Og enginn tók eftir því þegar heyrðist lágmælt skýring frá hússtjórn Skúlagötu fjögur. Það kom sem sé á daginn að kominn hafði verið tími á viðhald hússins, myndin að verða ónýt enda ekki gerð til að endast lengur en nokkur ár – og því hafði hússtjórnin tekið þá ákvörðun að mála vegginn bara hvítan. Og þangað til kemur að næstu mynd – næstu deilu – þurfum við að horfa á hvítan vegginn og hugsa upp næsta dæmi um „enn eitt dæmið“.
Skoðun

Nýtt húsnæðiskerfi á Íslandi: Norrænar hugmyndir opna dyrnar fyrir fyrstu kaupendur!
Bjarni Þór Sigurðsson skrifar

Óásættanleg meðferð á fjármunum félagsfólks VR – Hvar var stjórn VR?
Þorsteinn Skúli Sveinsson skrifar

Kjarkur og kraftur til að breyta
Áslaug Hulda Jónsdóttir,Eydís Arna Líndal skrifar

Fjórföldun á stuðningi við Guðrúnu
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Góður fyrsti aldarfjórðungur
Jón Guðni Ómarsson skrifar

Af hverju stríð?
Helga Þórólfsdóttir skrifar

Donald Trump
Jovana Pavlović skrifar

Hvammsvirkjun og framtíð laxfiska í Þjórsá
Dr. Margaret Filardo,Elvar Örn Friðriksson skrifar

Stækkum Sjálfstæðisflokkinn
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar

Trú- og lífsskoðunarfélög í landi sammannlegs stjórnskipulags – er samt hætta á óeiningu?
Svanur Sigurbjörnsson skrifar

Hvers á Öskjuhlíðin að gjalda?
Eyþór Máni Steinarsson skrifar

Karlveldið hefur enn ansi mörg andlit
Matthildur Björnsdóttir skrifar

Stjórnarskráin
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

„Þetta er atriðið þar sem þið takið til fótanna…”
Marta Wieczorek skrifar

Barátta hafnarverkamanna: Leiðin að viðurkenningu sem samningsaðili
Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar

Börn í vanda
Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar

Opið bréf til Jóns Björns Hákonarsonar
Fjóla Margrét Hrafnkelsdóttir,Guðrún Ásta Friðbertsdóttir,Karen Ragnarsdóttir,Lísa Lotta Björnsdóttir skrifar

Mýtan um óumflýjanlegan rússneskan sigur
Erlingur Erlingsson skrifar

Hinir mannlegu englar Landspítalans
Sveinn Hjörtur Guðfinnsson skrifar

Magnús Karl verður rektor fyrir okkur öll
Guðjón Reykdal Óskarsson skrifar

Leiðtoga- og stjórnendavandi: Af hverju meðalmennska í stjórnun skaðar skipulagsheildir og hvernig á að bæta úr?
Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar

Stöndum vörð um akademískt frelsi
Björn Þorsteinsson skrifar

Samræmd próf jafna stöðuna
Jón Pétur Zimsen skrifar

VR og við sem erum miðaldra
Halla Gunnarsdóttir skrifar

Áslaug Arna - minn formaður
Katrín Atladóttir skrifar

Mannauður er lykilfjárfesting sveitarfélaga
Álfhildur Leifsdóttir skrifar

Vandi Háskóla Íslands og lausnir – II – ákvörðun launa
Pétur Henry Petersen skrifar

Djarfar áherslur – sterkara VR
Þorsteinn Skúli Sveinsson skrifar

Við höfum tækifæri, sjálfstæðismenn!
Kristín Linda Jónsdóttir skrifar

Gervigreind í læknisfræði: Nýjustu tækniframfarirnar sem gætu bjargað mannslífum
Sigvaldi Einarsson skrifar