Sport

Boxreynsla Conor McGregor

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Conor var ákáfur í vigtuninni í gær.
Conor var ákáfur í vigtuninni í gær. Vísir/Getty
Stærsti bardagaviðburður ársins fer fram í nótt þegar Conor McGregor mætir Floyd Mayweather. Þetta verður hans fyrsti atvinnubardagi í boxi en hér förum við aðeins yfir boxreynslu Írans kjaftfora.

Conor McGregor er ríkjandi léttvigtarmeistari UFC og einn besti bardagamaður heims. Hann hefur keppt á stærsta sviði heims í MMA og er ein stærsta íþróttastjarna veraldar um þessar mundir.

Áður en hann fór í MMA tók hann sín fyrstu skref í boxinu. Hann var bara 11 ára gamall þegar hann steig fyrst fæti í Crumlin Boxing Club í Dublin – sami klúbbur og leikarinn Daniel Day Lewis æfði í er hann undirbjó sig fyrir hlutverk sitt í myndinni The Boxer. Eftir að hafa fengið samþykki foreldranna til að æfa kolféll Conor fyrir íþróttinni.

Það var ekkert öðruvísi eða sérstak við hann í fyrstu. Hann var þó mjög duglegur, alltaf til að læra og alltaf til í að æfa meira - nokkuð sem einkennir hann enn þann dag í dag.

Conor æfði box til 17 ára aldurs og var m.a. Írlandsmeistari unglinga. Eitt árið tók hann 50 áhugamannabardaga (vann þá alla) og barðist nánast hverja einustu helgi.

Conor fann samt að það vantaði eitthvað. Hvað ætlaði hann að gera ef einhver myndi ráðast á sig og hann myndi enda í jörðinni? Hvernig ætlaði hann að verjast spörkum? Hann var stöðugt að hugsa um aðstæður sem gætu átt sér stað á götunni.

Hans fyrstu skref sem alhliða bardagalistamaður voru með Tom Egan í bílskúrnum hins síðarnefnda. Tom Egan æfði brasilískt jiu-jitsu og kenndi Conor smá glímu á meðan Conor kenndi honum smá box. Þeir vissu þó báðir að til að gera þetta almennilega þyrftu þeir að æfa hjá guðföðurnum á Írlandi, John Kavanagh.

Á fyrstu æfingunni æfðu þeir með Owen Roddy. Conor var ekki lengi að hitta Roddy með sinni beinu vinstri. Roddy tók hann þó á endanum niður og kláraði með uppgjafartaki auðveldlega. Það var ekki aftur snúið hjá Conor eftir þetta og fangaði MMA hug hans og hjarta.

Tom Egan varð síðar fyrsti Írinn til að keppa í UFC og Conor auðvitað sá fyrsti í UFC til að vera meistari í tveimur þyngdarflokkum á sama tíma. Nú ætlar hann að snúa sér að boxheiminum og mæta Floyd Mayweather með þá Owen Roddy og John Kavanagh í horninu sínu.

Alvöru frumraun
Conor hefur undirbúið sig vel fyrir sinn fyrsta atvinnubardaga í boxi.Vísir/Getty
Þetta verður engin smá frumraun fyrir Conor á atvinnuferlinum í boxi, gegn sjálfum Floyd Mayweather og stjarnfræðilegar upphæðir í boði. Aldrei hefur bardagamaður fengið jafn mikið borgað fyrir sinn fyrsta boxbardaga.

Í huga Conor er þetta ekki hans fyrsti atvinnubardagi í boxi. Í æfingabúðunum hefur hann tekið nokkurs konar 12 lotu æfingabardaga með dómara í hringnum. Það er nokkuð óvenjulegt að taka 12 lotur gegn sama æfingafélaganum og sömuleiðis óvenjulegt að hafa alvöru dómara á æfingu. Þetta hefur hann gert til að safna reynslu fyrir kvöldið stóra.

Joe Cortez hefur starfað sem dómari á þessum æfingum hjá Conor til að sjá til þess að Conor fari eftir reglunum þegar á hólminn er komið. Floyd telur að Conor muni berjast óheiðarlega í kvöld en Cortez er þekktur fyrir að vera nokkuð strangur dómari og ætti Conor því að vera vanur því að fara eftir settum reglum.

Áhorfendur þurfa þó ekki að hafa áhyggjur af því að Conor taki óvart spark í Floyd eða noti óvart einhverja tækni úr MMA. Conor veit nákvæmlega hvað hann ætlar að gera gegn Floyd og er ekki að fara að gleyma sér í hita leiksins og sparka í Floyd. Hann er vanur því að taka bara boxlotur og getur staðist freistinguna að sparka í andlit Floyd Mayweather. Auk þess myndi Conor fá gríðarlega háa sekt ef hann myndi t.d. óvart sparka í Floyd en slíkt kemur fram í bardagasamningnum þeirra á milli.

Þó Conor hafi farið margar 12 lotur á æfingum er það ekki það sama og að fara 12 lotur gegn bestu boxurum heims eins og Floyd hefur gert. Floyd hefur farið allar 12 loturnar 19 sinnum. Hann veit því nákvæmlega hvenær hann getur hvílt sig og hvenær hann þarf að keyra upp hraðann. Það gæti reynst dýrmæt reynsla.

Floyd ábyrgist að hann muni rota Conor McGregor en Floyd hefur ekki rotað neinn síðan hann rotaði Victor Ortiz árið 2011 og var það afar umdeilt. Flestir spá því að Floyd fari með sigur af hólmi eftir dómaraákvörðun en spurningin er hvort Conor geti farið allar 12 loturnar gegn Floyd.

Við höfum ekki séð Conor verða fyrir barðinu á mörgum skrokkhöggum í UFC. Skrokkhögg taka loftið úr bardagamönnum, andardrátturinn verður erfiðari og vega skrokkhögg sérstaklega mikið þegar bardagar dragast á langinn. Við vitum því ekki hvernig Conor mun bregðast við ef Floyd mun ítrekað kýla í skrokkinn. Ef Floyd gerir það getur hann þreytt Conor hratt og tæmt orkuna hans. Þreyttur maður á erfitt með að rota.

Það er eiginlega ennþá ótrúlegt að Conor McGregor sé að fara keppa við Floyd Mayweather í boxi í kvöld. Fyrst þegar talað var um bardagann virtist þetta bara vera bull í fjölmiðlum og taktík hjá Floyd Mayweather að halda nafninu sínu í fjölmiðlum. Nú er þessi bardagi að bresta á í kvöld og velta margir því fyrir sér hvort Conor McGregor eigi séns gegn Floyd Mayweather. Allir hafa allir skoðun á bardaganum og allir vilja horfa á bardagann.

Bardaginn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í nótt en bein útsending hefst kl 0:40.

MMA

Tengdar fréttir

Gunnar: Conor klárar Mayweather með rothöggi

Gunnar Nelson telur að Conor McGregor sé bardagamaður sem henti Floyd Mayweather illa. Hann óttast ekki að illa fari fyrir sínum manni þó að Írinn muni þurfa að fara í tólf lotu bardaga gegn einum besta hnefaleikakappa sögunnar.

Búrið: Floyd plataði alla

Bardagi þeirra Conor McGregor og Floyd Mayweather er í brennidepli í Búrinu sem er á dagskrá Stöðvar 2 Sport klukkan 21.00 í kvöld.

Haraldur: Conor skuldar mér samloku

Conor McGregor var svo illa staddur fjárhagslega fyrir nokkrum árum síðan að hann svaf frítt hjá Nelson-feðgum og sló lán fyrir samlokum. Hann verður milljarðamæringur eftir helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×