Orkuveitan útvegaði útveggina Sigurður Mikael Jónsson skrifar 26. ágúst 2017 06:00 Vesturhús höfuðstöðva OR er illa farið. Vísir/Vilhelm „
Við höfum nákvæmlega engar áhyggjur af því,“ segir Þorvaldur Gissurarson, forstjóri ÞG Verks, aðspurður um ummæli forsvarsmanna Orkuveitu Reykjavíkur (OR) um hugsanlega málshöfðun vegna mikilla rakaskemmda á vesturhúsi höfuðstöðva Orkuveitunnar. ÞG Verk var aðalverktaki við byggingu höfuðstöðva OR á sínum tíma. Upplýsingafulltrúi OR lýsti því yfir í fjölmiðlum í gær að til skoðunar væri að höfða mál á hendur verktakanum sem byggði húsið þó engar ákvarðanir hafi verið teknar. Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, sagði sömuleiðis að OR muni kanna lagalega stöðu sína og hugsanlegan bótarétt þegar fyrir liggur frá dómkvöddum matsmanni hvar ábyrgðin er og hvert fjárhagslegt tjón verður. Þorvaldur segir að sér þyki einkennilegt að í öllu ferlinu hafi OR aldrei haft samband við ÞG Verk. OR upplýsti í gær að allir útveggir vesturhúss höfuðstöðvanna væru skemmdir. Orsök rakaskemmda væri fyrst og fremst að rigningarvatn kemst í gegnum veðurhlíf útveggjar og nær að byggingarefnum sem eru viðkvæm fyrir raka. Megnið af byggingarefni útveggja vesturhúss er skemmt af völdum raka en kostnaður við úrbætur gæti numið milljörðum króna. Þorvaldur segir útveggina hafa verið á ábyrgð OR. „Það er ágætt að komi fram að Orkuveitan lét hanna fyrir sig þetta útveggjakerfi. Þeir keyptu útveggjakerfið og sömdu við framleiðandann án okkar aðkomu og sömdu svo við okkur um uppsetningu á því samkvæmt þeirra fyrirmælum. Okkar partur var eingöngu sá að setja upp kerfi sem einhver annar keypti, fullframleitt og fullhannað, samkvæmt þeim fyrirmælum sem okkur voru gefin. Við búumst því ekki við frekari eftirmálum.“ Fjórtán árum eftir að höfuðstöðvarnar voru teknar í notkun er nú ræddur sá möguleiki að rífa hið rakaskemmda hús. Ráðgjafar OR ráðleggja þó að byggð verði glerkápa utan um húsið og útveggir látnir standa. Veggir yrðu síðan endurbyggðir að innanverðu en áætlaður kostnaður við það nemur 1,7 milljörðum króna.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Segist ætla finna orsök einhverfu fyrir september Erlent Eldur kom upp í seilingarfjarlægð frá gashylkjum og þvottaefni Innlent „Mér finnst þessi tilraun heldur ósmekkleg“ Innlent Bíll hafnaði á hliðinni í miðborginni Innlent „Ég hef ekkert með einkaskóla að gera“ Innlent Búið að slökkva eldinn í Hlíðunum Innlent Fjórir slasaðir eftir alvarlegt slys Innlent Fjórir drengir sem voru í bílnum slösuðust allir Innlent Lausn menntamálaráðherra sé valdníðsla Innlent Menendez bræðurnir nær frelsinu Erlent Fleiri fréttir Jarðskjálftahrina í Ljósufjallakerfinu Komugjöld á ferðamenn séu út í hött Fyrirhuguð komugjöld á óvissutíma og fölsuð listaverk til sýnis Búið að slökkva eldinn í Hlíðunum Eldur kom upp í seilingarfjarlægð frá gashylkjum og þvottaefni „Vinnan er rétt að hefjast“ Þyrlusveitin kölluð út á mesta forgangi vegna leka um borð í bát Bíll hafnaði á hliðinni í miðborginni „Ég hef ekkert með einkaskóla að gera“ Ætli það sé heitt vatn í landi Hallanda í Flóahreppi? Fjórir drengir sem voru í bílnum slösuðust allir Bein útsending: Samfylkingin 25 ára Mikið högg fyrir nærsamfélagið Skemmdarverk unnin á Jónshúsi í skjóli nætur Gripinn við kókaínsmygl á nítjánda aldursári Tæplega þrjátíu ungmenni á leið í samkvæmi þegar slysið varð Réttindalaus dreginn af öðrum Fjórir slasaðir eftir alvarlegt slys Endurskoða varðveislu á upptökum lögreglu eftir að gögnum var eytt Samstarf með ESB í varnarmálum komið í „formlegan farveg“ Fyrstu kvenkyns prófessorarnir í stærðfræði fagna dátt Lausn menntamálaráðherra sé valdníðsla Vilja ekki að íbúar upplifi sig undir stöðugu eftirliti stóra bróður Þyrlu Landhelgisgæslunnar flogið norður vegna slyssins „Mér finnst þessi tilraun heldur ósmekkleg“ Tifandi tímasprengjur á götum borgarinnar Hringbraut lokað vegna bílslyss Tifandi tímasprengjur, Kári um ósmekklegar tilraunir og stærðfræði-Helgurnar Nemendur fái inn hjá Tækniskólanum Engar hvalveiðar Hvals í sumar Sjá meira