Innlent

Engar hval­veiðar Hvals í sumar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Kristján Loftsson forstjóri Hvals á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í febrúar. Ekki náðist í Kristján við vinnslu fréttarinnar.
Kristján Loftsson forstjóri Hvals á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í febrúar. Ekki náðist í Kristján við vinnslu fréttarinnar. Vísir/Anton

Hvalur hf. stefnir ekki á hvalveiðar í sumar. Þetta herma heimildir fréttastofu en RÚV greindi fyrst frá.

Fram kemur í frétt RÚV að starfsmönnum fyrirtækisins hafi í vikunni verið tilkynnt um að ekkert yrði af vertíðinni. Vísir hefur fengið staðfest að fyrirtækið stefni ekki á vertíð. 

Samkvæmt heimildum fréttastofu er ástæðan meðal annars verðbólga í Japan og sömuleiðis óvissa í viðskiptaumhverfinu. Hvalur hefur treyst á viðskipti við Japansmarkað undanfarin ár.

Bjarni Benediktsson, þá starfandi matvælaráðherra, gaf út leyfi til hvalveiða til fimm ára í desember síðastliðnum.

Fréttastofa hefur gert ítrekaðar tilraunir til að ná í Kristján Loftsson, forstjóra Hvals, en án árangurs.


Tengdar fréttir

Taldi sig vanhæfan í að afgreiða umsókn Hvals hf.

Bjarni Bendiktsson, fyrrverandi forsætisráðherra, ætlaði að víkja sem matvælaráðherra í starfsstjórn þar sem hann taldi sig vanhæfan til að afgreiða umsókn Hvals hf. um veiðileyfi. Hann skipti hins vegar um skoðun tveimur vikum síðar.

Fyrsta langreyðurin á vertíðinni háði 35 mínútna dauðastríð

Fyrsta langreyðurin sem Hvalur hf. skaut eftir að veiðar hófust á ný, eftir tímabundna stöðvun, háði 35 mínútna dauðastríð. Fréttastofa hefur undir höndum myndbandsupptökur af atvikinu. Lögmaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir þetta sýna að ekki sé hægt að veiða stórhveli með mannúðlegum hætti.

Paul Watson heitir að trufla hvalveiðar á Íslandi í sumar

Hvalavinurinn kanadíski Paul Watson, sem er vel kunnugur landsmönnum, heitir því að trufla hvalveiðar á Íslandi í sumar. Hann varði drjúgum hluta vetrarins í fangelsi á Grænlandi en mikið hefur verið fjallað um það kast sem hann hefur komist í við lögin hér á landi.

Segir fjölgun hvala hafa áhrif á loðnustofninn

Árni Sverrisson, formaður Félags skipstjórnarmanna, segir skipstjórnarmenn sannfærða um að fjölgun hvala hafi áhrif á loðnustofninn og aðra fiskistofna. Hann segir nauðsynlegt að hafrannsóknir verði efldar og að Íslendingar veiði hvali, og vísar til skrifa Gísla Arnórs Víkingssonar sjávarlíffræðings og hvalasérfræðings í þeim efnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×