Innlent

Útlendingastofnun ræður öryggisvörð í afgreiðsluna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Öryggisvörðurinn stóð vaktina við Útlendingastofnun þegar ljósmyndara bar að garði.
Öryggisvörðurinn stóð vaktina við Útlendingastofnun þegar ljósmyndara bar að garði. Vísir/Anton Brink
Starfsfólk Útlendingastofnunar hafði verið varað við því að maður sem mætti í afgreiðsluna í Skógarhlíð í hádeginu síðastliðinn föstudag kynni að vera hættulegur. Af þeim sökum gerði það stutt hlé á störfum sínum, upplýsti hvert annað um stöðu mála og kallaði til lögreglu.

Þetta segir Þórhildur Hagalín, upplýsingafulltrúi hjá Útlendingastofnun, í svari við fyrirspurn Vísis. Ákveðið hefur verið að ráða öryggisfulltrúa til starfa í afgreiðslu stofnunarinnar í kjölfar atviksins.

Yfirgáfu afgreiðsluna öll sem eitt

Agnes Vala Bryndal var ein þeirra sem beið eftir afgreiðslu hjá stofnuninni umrætt skipti. Hún lýsti í kvöldfréttum Stöðvar 2 viðbrögðum fólks í afgreiðslunni þegar starfsfólk yfirgaf allt í einu afgeiðsluna, öll sem eitt og án skýringa. Eftir stóð einn maður í afgreiðslunni.

Agnes sagðist hafa vonað að maðurinn væri ekki vopnaður. Enginn sagði neitt og fólk sem beið sat grafkyrrt. Starfsmaður skellti í lás og skömmu seinna heyrðist sírenuvæl. Allt í einu var sérsveitin mætt og maðurinn tekinn fastur. Honum var svo sleppt eftir yfirheyrslu.

„Starfsfólk brást við á hárréttan hátt með því að gera stutt hlé á störfum sínum til að upplýsa hvert annað og hringja á lögregluna. Starfsmenn tóku síðan aftur til starfa í afgreiðslu,“ segir Þórhildur.

Aldrei læst inni

„Atvikið átti sér stað eftir opnunartíma og stóð starfsmaður við dyrnar til að gæta þess að ekki kæmu fleiri inn á meðan lokið var við að afgreiða þá sem höfðu komið fyrir lokun.“

Það hafi hins vegar ekki verið rétt að fólk hafi verið lokað inni í afgreiðslunni því ekki þurfi lykil til að opna dyrnar innan frá.

Í kjölfar atviksins hafi verið ákveðið að ráða öryggisvörð í afgreiðslu Útlendingastofnunar og verða viðbragðsáætlanir yfirfarnar.


Tengdar fréttir

Óskað eftir aðstoð sérsveitar lögreglu

Þeir sem biðu eftir afgreiðslu hjá Útlendingastofnun vissu ekki hvaðan á þá stóð veðrið þegar afgreiðslufólk hvarf. Eitt vitni óttaðist að maður sem beið afgreiðslu væri vopnaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×