Innlent

Þorgerður Katrín leiðir Viðreisn í Kraganum

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. vísir/eyþór
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, leiðir lista Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar sem haldnar verða 28. október næstkomandi.

Í tilkynningu frá Viðreisn segir að listinn, sem staðfestur var í dag, „endurspegli þann breiða hóp sem að framboðinu stendur; fólk úr viðskiptalífinu, menntamálum, menningu og námi.“

Eins og áður segir er Þorgerður Katrín í fyrsta sæti listans, í öðru sæti er Jón Steindór Valdimarsson, alþingismaður og í því þriðja er Sigríður María Egilsdóttir, háskólanemi.

Þá segir einnig í tilkynningu frá Viðreisn að listinn sé fléttaður bæði konum og körlum til jafns.

Listann má sjá í heild sinni hér að neðan.

1. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra

2. Jón Steindór Valdimarsson, alþingismaður

3. Sigríður María Egilsdóttir, háskólanemi

4. Ómar Ásbjörn Óskarsson, markaðsstjóri

5. Margrét Ágústsdóttir, sölustjóri

6. Ari Páll Karlsson, starfsmaður Nova

7. Auðbjörg Ólafsdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla og samskipta

8. Jón Ingi Hákonarson, ráðgjafi

9. Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir, háskólanemi og lögregluþjónn

10. Sigurður J. Grétarsson, prófessor

11. Ásta Rut Jónasdóttir, stjórnmálafræðingur

12. Sigvaldi Einarsson, fjármálaráðgjafi

13. Þórey S. Þórisdóttir, framkvæmdastjóri og doktorsnemi

14. Ólafur Þorri Árnason Klein, háskólanemi

15. Sara Dögg Svanhildardóttir, grunnskólakennari

16. Gylfi Steinn Guðmundsson, háskólanemi og stuðningsfulltrúi

17. Sigríður Þórðardóttir, tölvunarfræðingur

18. Stefán A. Gunnarsson, BA í sagnfræði

19. María Kristín Gylfadóttir, sérfræðingur

20. Benedikt Kristjánsson, háskólanemi

21. Kristín Pétursdóttir,  forstjóri

22. Pétur Steinn Guðmundsson, lögfræðingur

23. Laufey Kristjánsdóttir, félagsfræðingur,

24. Páll Torfi Önundarson, yfirlæknir

25. Ólöf Kolbrún Harðardóttir, óperusöngvari

26. Þórður Sverrisson, fyrrverandi forstjóri




Fleiri fréttir

Sjá meira


×