Sport

Brjálaðist er hann var kallaður niggari

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Pryor er hér svekktur.
Pryor er hér svekktur. vísir/getty
Útherji Washington Redskins, Terelle Pryor, brjálaðist eftir leik síns liðs gegn Kansas City Chiefs um síðustu helgi.

Pryor átti þá í snörpum orðaskiptum við áhorfanda og þurfti að draga hann að lokum inn í klefa því leikmaðurinn var það reiður að hann var alveg klár í slagsmál við dónana í stúkunni.

Pryor greindi frá því á Instagram að ástæðan fyrir reiði sinni hefði verið sú að hann hefði ítrekað verið kallaður niggari af áhorfanda út allan leikinn.

„Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að leikmenn eru að taka hné þegar þjóðsöngurinn er spilaður fyrir leiki,“ sagði Pryor.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×