Lífið

Ricky Gervais fer yfir af hverju hann hatar mannkynið

Samúel Karl Ólason skrifar
Fólk sem borðar með miklum látum er ofarlega á lista Gervais.
Fólk sem borðar með miklum látum er ofarlega á lista Gervais.
„Þegar ég segi allt, þá meina ég fólk. Allt fer í taugarnar á mér.“ Þetta sagði grínistinn Ricky Gervais í Tonight Show hjá Jimmy Fallon í gærkvöldi. Gervais virðist ekki hafa verið að grínast og það er ekkert sem hann hatar meira en flautandi allsbera menn í búningaklefum.

Það var ýmislegt fleira sem Gervais nefndi að færi í taugarnar á honum og allt virtist það tengjast fólki. Svo virðist sem að einungis eitt fari ekki í taugarnar á honum. Það eru hundar.


Tengdar fréttir

Bæði fyndið og fróðlegt eins og við var að búast

Breski grínistinn Ricky Gervais skemmti landsmönnum í Hörpu síðasta fimmtudag og föstudag með uppistandssýningunni Humanity. Miðar á báðar sýningar seldust upp á mettíma og því er ljóst að hann á dygga aðdáendur hér á landi. Gervais hefur varla stigið feilspor á ferli sínum og þeir sem voru svo heppnir að ná miða á sýningu hans hafa eflaust haft miklar væntingar til hans. En stóðst Gervais væntingar?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×