Lífið

Bam Margera tekur fram hjólabrettið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Margera er frábær á brettinu.
Margera er frábær á brettinu.
Jackass-meðlimurinn og Íslandsvinurinn Bam Margera er byrjaður aftur að renna sér á hjólabretti.

Margera vakti fyrst athygli þegar hann var í gamanþáttunum vinsælu Jackass á MTV-sjónvarpsstöðinni.

Hann hefur alltaf verið frábær hjólabrettakappi en lagði brettinu á hilluna í mörg ár. Margera hefur undanfarin ár verið þekktur fyrir skrautlegan lífstíl og átti hann lengi vel í vandræðum með áfengi og fíkniefni.

Nú er hann með breyttan lífstíl og er búinn að taka fram brettið á ný eins og sjá má hér að neðan.


Tengdar fréttir

Bam Margera handtekinn á Keflavíkurflugvelli

Jackass-stjarnan Bam Margera var handtekinn við komuna til landsins í gær. Ástæðan var sú að hann skuldaði bílaleigunni Hertz pening eftir að hann olli tjóni á Land Cruiser-bifreið fyrir ári síðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×