Skoðun

Lækkum verð með aukinni samkeppni

Lárus S. Lárusson skrifar
Strax eftir hrun sendi Samkeppniseftirlitið frá sér skýrslu um opnun markaða þar sem staðan á fjölda mikilvægra markaða var greind og stjórnvöldum bent á aðgerðir til þess að efla uppbyggingu og auka samkeppni. Í skýrslunni kom fram að töluvert af opinberum samkeppnishindrunum var enn til staðar og var hinu opinbera bent á fjölda raunhæfra aðgerða sem gætu leitt af sér aukna samkeppni samfélaginu og neytendum til hagsbóta.

Seinna þegar Mackinsey skýrslan kom út árið 2012 kom á daginn að aðferðafræði Samkeppniseftirlitsins var á réttri braut. Árið 2015 stóð Samkeppniseftirlitið fyrir opnum fundi með OECD þar sem rætt var um áhrif stjórnvalda á samkeppni. Á fundinum var m.a. fjallað um það hvernig stjórnvöld geta með endurskoðun laga og reglna haft allt að 20% lækkandi áhrif á verð á viðkomandi mörkuðum. Það sem um ræði nánar til tekið er endurskoðun gildandi laga og reglna með það fyrir augum að ryðja úr vegi samkeppnishamlandi ákvæðum eða kerfisbundnum samkeppnishömlum sem geta falist í gildandi reglum eða leitt af þeim.

OECD hefur þróað skilvirka aðferðafræði til þess að ná þessum markmiðum og var henni til að mynda beitt á Grikklandi með góðum árangri og skilaði þar ávinningi sem talinn er nema 2,5% af vergri landsframleiðslu Grikklands. Þetta var stór liður í endurreisn landsins.

Framangreint hefur augljóslega mikla þýðingu ekki aðeins fyrir neytendur í landinu heldur ekki síður fyrir fyrirtæki og hagsmuni þeirra af því að geta starfað á markaði þar sem ríkir heilbrigð og virk samkeppni þar sem allir spila eftir sömu leikreglum.

Síðan þá hefur lítið gerst. Margur hefði haldið að stjórnvöld myndu taka á sig rögg og grípa tækifærið til þess að ná svona miklum ávinningi fyrir samfélagið í heild. Því miður virðist sem stjórnvöld hafi skellt skollaeyrum við.

Samkeppnishæfni okkar er undirstaða hagsældar á Íslandi. Til þess að bæta hana þurfa allir að eiga jafnan rétt og allir fara að sömu leikreglum, ekki síst hið opinbera. Aðgerðir sem geta skilað allt að 20% verðlækkun til almennings í landinu á tilteknum mörkuðum ættu að vera ofarlega í forgangsröðinni hjá ríkisstjórninni. Er þá ekki minnst á fleiri jákvæð áhrif sem fylgja í kjölfarið og hafa verið sannreyndar með aðferðafræði OECD.

Höfundur skipar 1. sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík norður.




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×