Lífið

Íslensk þjóðlög í austurlenskum búningi

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Sofðu unga ástin mín og fleiri perlur eru færðar í austrænan búning.
Sofðu unga ástin mín og fleiri perlur eru færðar í austrænan búning.
Ég hef samið nýja kafla við íslensk þjóðlög, alls konar spuna og intró – ég er að stækka þjóðlögin og síðan set ég þau í svona austrænan eða tyrkneskan hljóðheim,“ segir Ásgeir Ásgeirsson sem gefur í dag út plötuna Icelandic folksongs vol. 1, Two Sides of Europe. Með honum á plötunni spila fjórir Tyrkir, Göksel Baktagir, Derya Túrkan, Oray Yay og lútusnillingurinn Yurdal Tokcan en hann vann með Ásgeiri í því að útsetja þjóðlögin upp á nýtt. Einnig syngur Sigríður Thorlacius í nokkrum laganna.

„Tyrkirnir spila á hljóðfæri sem við á Vesturlöndum þekkjum ekki mikið: borðharpa, alls konar slagverk og fleiri spennandi hlutir. Ég hef farið mikið til Tyrklands og Suðaustur-Evrópu til að stúdera þessa músík. Ég spila sjálfur á nokkur af þessum hljóðfærum.“

Tyrkirnir komast því miður ekki til landsins til að spila með Ásgeiri í kvöld og því hefur hann fengið með sér íslenska bandið Skuggamyndir frá Býsans, en það hefur verið starfandi síðustu sjö árin. Sigríður Thorlacius verður á svæðinu ásamt Sigrúnu Kristbjörgu Jónsdóttur sem spilar á fiðlu.

„Við munum spila þjóðlög frá ýmsum löndum, líka Íslandi – þannig að þetta verður svona tónlistarkokteill. Það verður enginn svikinn af því að kíkja – Skuggamyndirnar eru þekktar hjá þeim sem hlusta á austurevrópska og gríska tónlist, enda hafa þeir rosa mikið spilað á landinu auk þess að hafa gefið út tvær plötur.“

Tónleikarnir eru hluti tónleikaraðar Jazzklúbbsins Múlans og hefjast klukkan 21 í Björtuloftum í Hörpu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×