Skoðun

Sigmundur Davíð og Miðflokkurinn

Hjörleifur Hallgríms skrifar
Eftir árásir og einelti, sem ég hélt að væri verið að reyna að uppræta, venjulega að ósekju, sá Sigmundur Davíð sig knúinn til að segja sig úr Framsóknarflokknum, sem var ekki sársaukalaust, og stofnaði Miðflokkinn.

Það voru fleiri en hann, sem sögðu sig úr flokknum og var það hjá mörgum mikið tilfinningamál eðlilega, en þetta sama fólk sætti sig einfaldlega ekki við linnulausar árásirnar á saklausan manninn. Örugglega hefði enginn trúað því fyrirfram að maðurinn, sem hafði leitt Framsóknarflokkinn í kosningunum 2013 til eins af stærstu sigrum flokksins, sem unnist hafði eða rúm 23% atkv. og 19 þingmenn yrði hrakinn frá forystu flokksins með smán á flokksþinginu haustið 2016.

Ég hef marg sagt að það er er öllum frjálst að bjóða sig fram til formanns í Framsóknarflokknum en það, sem Sigurður Ingi gerði lýsir þvílíkum óheilindum og dómgreindarleysi að jaðrar við einsdæmi. þá, fyrir nokkrum mánuðum hafði hann marglýst því yfir bæði á fundum og í fjölmiðlum að myndi ekki bjóða sig fram gegn Sigmundi Davíð.

Sigurður Ingi var kosinn formaður Framsóknaflokksins á fyrrgreindu flokksþingi en skyldi hann eða grasrótin, sem hann ber fyrir sig að hafi skorað á sig órað fyrir þvílíkum harmleik og hruni, sem varð hjá flokknum að tapa 11 þingmönnum úr 19 í 8. Þvílik útreið hjá nýjum formanni. Og nú stefnir í enn meira tap samkvæmt nýjum skoðanakönnunum. Sigurður Ingi ef þetta kallast ekki að láta fífla sig af misvitlausu og dómgreindarlausu fóki veit ég ekki hvað það er. Sigmundur Davíð er afburða stjórnmálamaður að visku og vexti en oft er það svo að smælingjarnir þola ekki yfirburðina og þá er tekið til örþrifaráða t.d. skítkastsins.

Eftir að hafa kynnt mér stefnuskrá Miðflokksins sé ég glögglega handbragð meistarans og varð mér þá strax hugsað til þeirra stóru mála, sem hann knúði í gegn þegar hann var forsætisráðherra og má þar t.d. nefna Icesavemálið, skuldaleiðréttingu heimilanna, sem hvorutveggja sparaði fjölskyldunum í landinu milljónir, uppgjörið við kröfuhafana og erlendu hrægammana, sem ætluðu að hirða fúlgur fjár úr landi. Þá var ég auðvitað mjög hrifinn af hvernig hann einblínir á að bæta verulega kjör eldirborgara og öryrkja, en fyrrum fjármálaráðherrar hafa haldi því fólki undir fátækramörkum.

Hjörleifur Hallgríms, eldri borgari




Skoðun

Sjá meira


×