Carragher: Ryan Giggs kemur ekki til greina sem stjóri Everton Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. október 2017 08:30 Ryan Giggs. Vísir/Getty
Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool og nú knattspyrnuspekingur á Sky Sports, telur að Ryan Giggs eigi enga möguleika á því að verða næsti knattspyrnustjóri Everton. Fréttir bárust af því í gær að Ryan Giggs hefði áhuga á að taka við liði Gylfa Þórs Sigurðssonar sem leitar nú að nýjum knattspyrnustjóra eftir að Ronald Koeman var rekinn. Everton hefur byrjað tímabilið skelfilega þrátt fyrir að eyða stórum upphæðum í nýja leikmenn eins og einmitt Gylfa okkar. Ryan Giggs vill ólmur komast að hjá liði ensku úrvalsdeildinni og það kemur því líka til greina hjá honum að fara til Leicester. Carragher grínaðist reyndar með það á Twitter að Everton ætti að leyfa Ryan Giggs að fá tækifæri fram á vor en í viðtali á Sky Sports er aðeins annað hljóð í honum. „Ég held að Ryan Giggs komu ekki til greina sem næsti stjóri Everton og þetta segi ég með fullri virðingu. Hann vill komast í knattspyrnustjórastöðu sem er hið besta mál. Hann fékk flottan skóla þegar hann spilaði fyrir frábæra stjóra hjá Manchester United en ég held bara að hann komi bara ekki til greina að þessu sinni,“ sagði Jamie Carragher við Sky Sports. Jamie Carragher telur að Sean Dyche, stjóri Burnley, sé mun líklegri kostur. „Hann er að vinna frábært starf með Burnley. Everton liðið er í fallsæti og þarf að þétta vörnina. Sean Dyche kann það,“ sagði Carragher. „Þetta yrði stórt skref fyrir hann en sem stjóri viltu alltaf reyna að komast hærra. Ég sé af hverju hann er ofarlega á þessum lista,“ sagði Carragher.
Enski boltinn Mest lesið Þýskur sigur í meistaramóti ökumanna Formúla 1 Þjóðverjar með algjöra yfirburði í seinni hálfleik og á leið í átta liða úrslit Fótbolti Evrópumeistararnir úr leik á EM og Sviss í átta liða úrslit Fótbolti Króatar fengu stóra sekt frá UEFA Fótbolti Keane bað Maguire afsökunar: „Ég fór yfir strikið“ Enski boltinn Elísabet ekki ráðin til Villa Enski boltinn Þrettán ára Íslandsmeistari í tennis Sport Uppgjör og viðtöl: Valur - Þróttur 3-0 | Valskonur í bikarúrslit Íslenski boltinn Sjáðu dramatíkina á Akranesi og hvernig FH og KA unnu sína leiki Íslenski boltinn Hafmeyjurnar synda yfir Ermarsundið Sport Fleiri fréttir Elísabet ekki ráðin til Villa Keane bað Maguire afsökunar: „Ég fór yfir strikið“ Nistelrooy snýr aftur til Manchester United Þjálfari Willums á leið til United Shaq vill kaupa hlut í West Ham Manchester United missir fleiri stjörnur Kvennalið Man Utd fært svo pláss sé fyrir karlaliðið Íhuga að selja nafnaréttinn á Old Trafford Mun ekki leyfa kaup og sölur á uppsprengdu verði Vilja spila leik í ensku C-deildinni á bandarískri grundu Alan Hansen útskrifaður af spítalanum Nýr leikmaður Chelsea sagður vera besti Brassinn síðan Neymar kom fram Bæjarar halda áfram að taka stjörnur úr ensku úrvalsdeildinni Eigandi Roma tryggir sér kauprétt á Everton Enski boltinn snýr aftur heim Beta sterklega orðuð við Aston Villa Man United má ekki kaupa leikmenn af Nice Nýliðarnir ráða manninn sem Forest lét fara Arne Slot fær auðveldustu byrjunina í deildinni Slot fékk góð ráð hjá Klopp og tekur teymið með sér Man United íhugar kaup á Zirkzee Chelsea-Man City í fyrstu umferð Jón Dagur orðaður við lið í ensku úrvalsdeildinni Man City sagt ekki ætla að styrkja sig með nýjum leikmönnum Eru að reyna að kaupa kærustuparið Ten Hag: Ekkert leyndarmál að aðrir komu til greina en sá besti var nú þegar í starfinu Ronaldo hlustaði ekki á meðan aðrir vildu Ancelotti eða Zidane Yngsti þjálfari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Ratcliffe ræðst í fimmtíu milljóna punda endurbætur á Carrington æfingasvæðinu Lallana snýr aftur til Southampton Sjá meira