Sport

Anníe Mist á Instagram: Hefur þig einhvern tímann langað til að heimsækja Ísland?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Anníe Mist Þórisdóttir.
Anníe Mist Þórisdóttir. Mynd/Instagram/anniethorisdottir
Anníe Mist Þórisdóttir er með mörg hundruð þúsund fylgjendur á samfélagsmiðlum sínum og ekki síst á Instagram.

Í nýjustu færslu sinni á Instagram hvetur íslenska crossfit-stjarnan erlenda fylgjendur sína að skella sér til Íslands í janúar.

Ástæðan. Jú helgina 6. til 7. janúar næstkomandi mun árlega WOW Stronger crossfit mótið fara fram hér á landi. Anníe Mist auglýsir mótið á Instagram-síðu sinni og það verður fróðlegt að sjá hvort að umsóknum rigni ekki inn í kjölfarið.

Tæplega níu þúsund manns höfðu líkað við færsluna þegar þessi frétt er skrifuð en Anníe Mist setti færslu sína inn fyrr í dag.







Íslensku crossfit-dæturnar eru fyrir löngu orðnar heimsfrægar og það má búast við að fullt af crossfit fólki munu stökkva á tækifærið að heimsækja Ísland og fá um leið að keppa við okkar öfluga crossfit fólk.

Anníe Mist Þórisdóttir hefur unnið heimsleikana tvisvar sinnum og komst á pall í fimmta sinn á síðustu heimsleikum í ágúst. Engin önnur crossfit-kona er með slíkan árangur á ferilsskrá sinni.

Keppt er  í þriggja manna liðum á WOW Stronger crossfit mótinu en liðin verða  samansett af tveimur körlum og einni konu. Keppt verður í CrossFit með áherslu á Strongman æfingar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×