Lífið

Ég á fullt af alnöfnum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Ingibjörg útilokar ekki að skrifa bók nú þegar hún er hætt að vinna.
Ingibjörg útilokar ekki að skrifa bók nú þegar hún er hætt að vinna. Fréttablaðið/Valli
Margir þurfa að láta af störfum þegar sjötugsafmælið brestur á svo Ingibjörg Hafstað kennari sem fyllir sjöunda tuginn í dag er spurð hvort um meiriháttar tímamót sé að ræða. „Nei, ég er nú eiginlega hætt að vinna reglubundið, veiktist í fyrra svo það kom af sjálfu sér. Nú tek ég bara að mér verkefni. Ég kenndi útlendingum íslensku í mörg ár. Stofnaði lítið fyrirtæki utan um það sem heitir Fjölmenning og hafði nóg að gera, ég hefði getað haldið áfram þess vegna.“

Þegar Ingibjörgu er slegið upp í Íslendingabók kemur í ljós að í hennar formæðra- og feðrahópi eru auk Hafstaðs, ættarnöfnin Hafstein, Scheving, Stephensen og Kvaran. Hún hlær þegar hún er spurð hvort það sé gaman að heita Hafstað? „Ég reyndi einu sinni að hætta að nota þetta nafn en það tókst ekki. Nafnið er það mikill hluti af manni. Ég heiti Ingibjörg Sigurðardóttir og þar var fræg skáldkona fyrir á fleti. Amma hét Ingibjörg og ég á fullt af alnöfnum.“

Hún segir Hafstaðsnafnið koma úr Skagafirði. „Afi minn bjó í Vík í Skagafirði, það er óðalið og þar býr ein nafna mín.“ 



Þótt Ingibjörg reki ættir sínar norður kveðst hún hafa alist upp í útlöndum að mestu leyti. „Ég er diplómatabarn, fædd í Moskvu og þaðan fóru foreldrar mínir, Sigurður Hafstað og Ragnheiður Kvaran, til Svíþjóðar, svo til Noregs, síðan til Frakklands og aftur til Moskvu svo það var mikið rót á okkur,“ útskýrir hún. „Ég mundi ekki gera mínu barni það að alast upp á svo mörgum og ólíkum stöðum, held að það sé ekkert hollt en ég lærði mörg tungumál og það hefur komið sér vel í kennslu fyrir útlendinga.“

Nú þarf Ingibjörg að rjúka því hún á tíma hjá tannlækni uppi á Akranesi en hún hefur pottþétt frá mörgu að segja, svo það væri efni í heila bók. Kemur sú bók kannski einhvern tíma? „Það gæti bara vel verið nú þegar ég er hætt að vinna!“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×