Lífið

Sam Smith táraðist á rúntinum með Corden en fékk algjört sjokk undir lokin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bretarnir skemmtu sér vel saman.
Bretarnir skemmtu sér vel saman.
Breski spjallþáttastjórnandinn James Corden fékk landa sinn Sam Smith á rúntinn með sér í dagskráliðnum Carpool Karaoke á dögunum.

Saman rúntuðu þeir um Los Angeles og fóru yfir málin. James Corden var ekkert sérstaklega ánægður með það að Sam Smith hafi skafað af sér töluvert mörg kíló undanfarin ár, og skilið hann einan eftir með bumbu.

Fram kom að Corden hafi í raun verið maðurinn sem kom Sam Smith á kortið þegar hann tísti lagi hans á sínum tíma. Þá starfaði Smith á bar og táraðist söngvarinn þegar Corden rifjaði upp þegar hann heyrði fyrst í honum í útvarpinu.

Svo komu gestir inn í bílnum og komu Smith á óvart eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×