Lífið

Ólafía nýtur lífsins í Víetnam og hendir í belfie

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir vísir/getty
Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir nýtur lífsins í Víetnam um þessar mundir en hún greinir frá því á Twitter.

Ólafía hafnaði í 59. sæti á Sime Darby LPGA mótinu sem fram fór í Kuala-Lumpur í Malasíu.

Næstu tvö mót hjá kylfingnum fara fram í Japan og Kína en hún er sjálf að hlaða batteríin í Víetnam, og það fyrir komandi átök.

Ólafía hefur nú þegar unnið sér inn 22 milljónir króna í verðlaunafé á fyrsta ári sínu á LPGA-mótaröðinni.

Ólafía býður líka upp á hörkudans með vinkonu sinni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×