Sport

Baðst afsökunar eftir að mamma hans lét hann heyra það

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Marcus Mariota.
Marcus Mariota. Vísir/Getty
Marcus Mariota er leikstjórnandi Tennessee Titans í NFL-deildinni og var ekki alveg í besta skapinu eftir tap á móti Arizona Cardinals í amersíka fótboltanum um síðustu helgi.

Mariota mætti öskuillur á blaðamannfundinn eftir leikinn en það gekk lítið upp hjá honum í þessum leik sem tapaðist 12-7.

Móðir Mariota sá blaðamannafundinn með stráknum sínum og var allt annað en sátt við það sem hún varð vitni að.

Mariota hitti blaðamenn aftur í dag og baðst þó afsökunar á framkomu sinni eftir að hafa fengið að heyra það frá móður sinni.

 





„Ég vil fyrst biðjast afsökunar á hvernig ég hagaði mér á fundinum. Ég veit að allir sem voru þar eru ekki hér í dag en ég var ókurteis og sagði hluti sem voru óviðeigandi. Ég biðst afsökunar á því,“ sagði Mariota.

Blaðamaður á fundinum var á umræddum fundi og sagði að honum hafi ekki fundist það sem Mariota sagði á fundinum á sunnudaginn hafi verið óviðeigandi.

„Þetta er svolítið fyndið því ég fékk að heyra það frá móður minni. Hún sagði að ég hafi ekki verið alinn upp til að hegða mér svona og ég vil þakka ykkur fyrir að sýna þessu skilning,“ sagði Mariota.

Eftir leikinn sagði Marcus Mariota að hann væri brjálaður („pissed off“) og það var meðal annars þau orð sem fóru hvað mest fyrir brjóstið á móður hans.

Marcus Mariota er 24 ára gamall og kemur frá Hawaí. Hann er á sínu þriðja ári í NFL-deildinni en er ekki alveg að ná að fylgja eftir frábæru öðru ári þar sem hann var með 26 snertimarkssendingar og kastaði boltanum aðeins níu sinni frá sér.

Á þessu tímabili hefur Marcus Mariota gefið 10 snertimarkssendingar og kastað boltanum fjórtán sinum frá sér.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×