Lögreglan hefur grun um að erlendur karlmaður sem grunaður er um tilraun til mandráps með því að hafa ráðist á fyrrverandi kærustu sína aðfaranótt 3. desember sé ekki sá sem hann hafi kvaðst vera. Lögreglan hefur undir höndum tvö vegabréf í eigu mannsins, annað þeirra er falsað og hitt gefa þau mismunandi upplýsingar um nafn, fæðingardag og upprunaland mannsins.
Maðurinn er með dvalarleyfi hér á landi og er nú til skoðunar hjá Útlendingastofnun að afturkalla dvalarleyfi mannsins.
Þetta kemur fram í dómi Hæstaréttar sem staðfesti áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manninum í dag, eins og Vísir greindi frá.
Þar segir einnig að tvö vitni séu að árásinni. Annað vitnið hafi heyrt manneskju öskra „get ekki andað, get ekki andað“ og „hann var að reyna að drepa mig – hann var að kyrkja mig.“ Annað vitni kveðst hafa séð stúlku sem hafi átt erfitt með að ná andanum.
Gögnin renni stoðum undir framburð konunnar
Konan var með marga höggáverka á ýmsum hlutum líkamans samkvæmt áverkavottorði réttarmeinafræðings.
Á hlið hálsins, einkum hægra megin hafi greinst rauðar litabreytingar á hörundi, sem „má túlka sem kyrkingarummerki, sem líklegast samsvara stöðu upphandleggs og framhandleggs við kyrkingartak.“
Lögreglan kom á vettvang í Holtunum laust eftir klukkan 5 þann 3. desember og stúlkan tók þar á móti þeim. Að sögn lögreglu var hún í miklu uppnámi og tjáði lögreglumönnum að maðurinn hefði kyrkt hana þangað til hún hafi misst meðvitund. Maðurinn hafi gefið sig fram á vettvangi og í kjölfarið verið handtekinn.
Lögreglan tók tvær skýrslur af konunni, á slysadeild og hjá lögreglu. Þar lýsti hún atburðum með sama hætti, maðurinn hafi haldið henni í kyrkingartaki þar til hún hafi misst meðvitund. Hafi hún kveðið kærða hafa sagst ætla að drepa hana í sama mund og hann hafi tekið hana hálstaki.
Maðurinn neitar sök en gögn málsins eru talin renna stoðum undir framburð konunnar.
Dóm Hæstaréttar má lesa hér.
Grunaður um tilraun til manndráps: Grunur um að maðurinn sé ekki sá sem hann segist vera

Tengdar fréttir

Grunaður um tilraun til manndráps: Áverkavottorð þýsks réttarmeinafræðings lykilgagn í málinu
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að erlendur karlmaður sem grunaður er um tilraun til manndráps skuli sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna til 3. janúar næstkomandi.

Grunaður um tilraun til manndráps: Kona tekin hengingartaki þar til hún missti meðvitund
Komst til meðvitundar eftir þó nokkurn tíma og hljóp þá í mikilli geðshræringu út úr húsinu og náði að gera nærstöddum viðvart.

Maðurinn sem grunaður er um tilraun til manndráps laus úr haldi
Hæstiréttur féllst ekki á sjónarmið lögreglunnar um að maðurinn ætti að sitja í gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna.

Aftur í varðhald þvert á dóm Hæstaréttar
Erlendur karlmaður var í lok síðustu viku úrskurðaður í gæsluvarðhald til 3. janúar næstkomandi grunaður um tilraun til manndráps.