Everton enn ósigrað undir stjórn Stóra Sams

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gylfi í baráttunni við Victor Moses.
Gylfi í baráttunni við Victor Moses. vísir/getty
Everton er enn ósigrað undir stjórn Sams Allardyce en í dag gerði liðið markalaust jafntefli við Englandsmeistara Chelsea á Goodison Park.

Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn fyrir Everton sem er áfram í 9. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Síðan Stóri Sam byrjaði að stýra Everton hefur liðið náð í 11 af 15 stigum mögulegum. Everton hefur haldið hreinu í þremur af þessum fimm leikjum.

Varnarleikur Everton var sterkur í leiknum í dag og Chelsea fékk ekki mörg opin færi.

Chelsea er í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 39 stig, 13 stigum á eftir toppliði Manchester City.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira