Færeyskum fiskiskipum óheimilt að veiða innan íslenskrar lögsögu Ingvar Þór Björnsson skrifar 30. desember 2017 12:25 Frá Þórshöfn í Færeyjum. Um níutíu prósent kolmunnaafla Ísland er veiddur í færeyskri lögsögu. Vísir/GVA
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ákveðið að fella úr gildi allar heimildir færeyskra fiskiskipa til að stunda veiðar innan íslenskrar lögsögu á næsta ári. Á árlegum fundi sjávarútvegsráðherra landanna náðist ekki samkomulag í málaflokknum.Eins og greint var frá í gær sigldu samningaviðræður um gagnkvæmar fiskveiðar innan efnahagssögu landanna í strand að hluta. Fundað var um málið í atvinnuveganefnd í kjölfarið. Kristján Þór og Høgni Hoydal, sjávarútvegsráðherra Færeyja, hittust á árlegum fundi sem haldinn var í Þórshöfn í Færeyjum 12. – 13. desember. Ekki náðist samkomulag á fundinum um veiðiheimildir Færeyinga í íslenskri lögsögu og um gagnkvæman aðgang að lögsögum ríkjanna vegna veiða á kolmunna og norsk-íslenskri síld árið 2018. Ísland lagði fram óbreyttan samning en Færeyjar kröfðust aukinna heimilda til veiða á botnfiski í íslenskri lögsögu ásamt afléttingu takmarkana á manneldisvinnslu á loðnu. Áform ráðherra voru kynnt færeyskum stjórnvöldum fyrir jól eftir að Færeyjar höfðu tilkynnt að íslensk fiskiskip fengju ekki aðgang til veiða á kolmunna í færeyskri lögsögu nema að kröfum þeirra yrði gengið. Ákvörðun ráðherra hefur sömuleiðis verið kynnt færeyskum stjórnvöldum. Tæp níutíu prósent kolmunnaafla Ísland er veiddur í færeyskri lögsögu.
Mest lesið „Mér að mæta“ ef krossar yrðu fjarlægðir Innlent Óttast að tapa bestu flúðum landsins í virkjun Innlent Hlé vegna gagna frá ChatGPT Innlent Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum Innlent Segir verkfræðinga á villigötum Innlent Sérsveitin kölluð til í Urriðaholti Innlent Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Innlent „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Innlent Landsvirkjun gerir 725 milljón króna tilboð í Toppstöðina Innlent Tæknileg vandræði hjá Háskóla Íslands Innlent Fleiri fréttir Gagnrýnir tvískinnung borgaryfirvalda með orlofsgreiðslur Dags Heitavatnslaust víða á mánudag Tæknileg vandræði hjá Háskóla Íslands Hlé vegna gagna frá ChatGPT Sérsveitin kölluð til í Urriðaholti „Mér að mæta“ ef krossar yrðu fjarlægðir Segir verkfræðinga á villigötum Landsvirkjun gerir 725 milljón króna tilboð í Toppstöðina Skjálfti í Bárðarbunguöskjunni Óttast að tapa bestu flúðum landsins í virkjun Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Apabóla geti komið til landsins en muni ekki verða útbreidd Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Munaðarlaus álftarungi ætti að spjara sig Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Áttar sig ekki á ákalli formanns VG Ósammála ráðherrar, brotthvarf tónleikastaða og einmana ungi Neitaði að borga þegar á áfangastað var komið Fordæmalausar skemmdir unnar á Sprengisandi Helga Vala til Lögfræðistofu Reykjavíkur Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Sektaður fyrir að nota rafólar á hunda Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Beðið eftir gosi, orlofsgreiðslur og ósáttir verkfræðingar Fjórir berjast um embætti umboðsmanns Alþingis Fundu erfðabreytileika sem stórauka áhættu á Parkinsons „Týpísk pólitík að tefja málið“ Sjá meira