Lífið

Kári skoraði á Kolbein í upphífingakeppni: „Ef hann heldur áfram næstu 40 árin gæti hann náð mér“

Anton Egilsson skrifar
Kári og Kolbeinn tókust á í upphífingakeppni í World Class Lagum í gær.
Kári og Kolbeinn tókust á í upphífingakeppni í World Class Lagum í gær. Vísir/Getty
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, og Kolbeinn Sigþórsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, öttu kappi í upphífingakeppni í líkamsræktarstöðinni World Class í gærdag. Vakti atvikið mikla athygli meðal annarra líkamsræktargesta.

„Menn mega af og til leika sér þrátt fyrir háan aldur,“ sagði Kári léttur í bragði þegar fréttamaður spurði hann út í umrædda keppni.

Hann hafi þó ekki verið meðvitaður um það að hann væri að skora á einn fremsta knattspyrnumann landsins.  

„Nú, var þetta landsliðsmaður í fótbolta?,“ sagði Kári og bar mikið lof á Kolbein: „Þetta er afskaplega notalegur, skemmtilegur, kraftmikill og fínn strákur.“

Aðspurður um hvernig atvikið hafi komið til sagði Kári að hann hafi þekkt einkaþjálfara Kolbeins um langa hríð og að hann hafi séð ástæðu til að gantast aðeins í þeim. Þeir hafi tekið því vel.

„Þegar menn koma saman á slíkum stað þá gantast þeir. Það er hluti af þessu öllu saman,“ sagði Kári og bætti við: „Við lékum okkur að því að lyfta okkur aðeins upp.“

Gæti náð mér eftir 40 ár

Segist Kári eðlilega vera betri en Kolbeinn í upphýfingum enda hafi hann áratuga langa þjálfun fram yfir landsliðsmanninn knáa.

„Munurinn á mér og honum er sá að ég er 68 ára gamall og hef því fengið mun meiri tíma til þess að þjálfa mig þannig að auðvitað er ég miklu betri en hann í þessu. Ef hann heldur áfram næstu 40 árin gæti hann náð mér.“ 

Hann kvaðst þó ekki viss um hver hefði borið sigur af hólmi í keppninni.

„Ég held að við höfum gert mjög svipað,“ sagði Kári að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.