Innlent

Píratar ræða vaxtarverki og viðburðaríkt ár á aðalfundi

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Píratar þreföldu þingflokk sinn í síðustu kosningum. Hér eru þeir að sannfæra kjósendur í Kringlunni síðasta haust.
Píratar þreföldu þingflokk sinn í síðustu kosningum. Hér eru þeir að sannfæra kjósendur í Kringlunni síðasta haust. Vísir/ernir
Aðalfundur Pírata hófst í morgun og stendur yfir um helgina. Formaður Ungra Pírata segir að litið verði yfir síðasta starfsár með gagnrýnum augum og kosið verður í ráð og nefndir í dag.

Aðalfundur Pírata hófst klukkan níu í morgun í Valsheimilinu við Hlíðarenda í Reykjavík. Dagskráin hófst með svokallaðri færnimiðlum þar sem þingmenn Pírata leidddu samtal um ýmis málefni á borð við vímuefni, húsnæðismál og fjármálaeftirlit á Íslandi. Dóra Björt Guðjónsdóttir, formaður Ungra Pírata, segir að í dag verði farið yfir liðið starfsár.

„Það sem við ætlum að hafa aðallega á dagskránni í dag er það sem hefur gengið vel, það sem hefur gengið illa. Líta yfir þann árangur sem við höfum náð. Staldara við sem og að líta yfir farinn veg,“ segir Dóra.

Dóra Björt Guðjónsdóttir er formaður Ungra Pírata
Hún segir eðlilegt að hlutirnir gangi misvel hjá nýjum stjórnmálaflokki og að það þurfi að skoða.

„Við erum náttúrulega ný. Við höfum verið að gera allt í fyrsta skipti undanfarin ár. Það er auðvitað þannig að það er ýmislegt sem gengur misvel. Við munum líta á það gagnrýnum augum, reyna að læra af því og bæta okkur til þess að ná betri árangri í framtíðinni,“ segir Dóra.

„Það er rosa flókið að fara í svona stórar kosningar þar sem margir hafa miklar væntingar til okkar. Við þurfum að taka skrefið úr því að vera pínulítill flokkur með þrjá þingmenn yfir í að fá 10 þingmenn. Þannig að það eru ákveðnir vaxtarverkir sem hafa gengið á. Þannig að það yrði kannski það helsta sem við myndum ræða í tengslum við þetta.“

Mögulegar ályktanir verða samþykktar á morgun en engin formleg drög verða þó lögð fyrir fundinn.

„Við vinnum dálítið þannig að við viljum byrja með grasrótinni og hafa hana með frá upphafi frekar en að leggja fyrir einhver drög sem er svo þrýst á að séu samþykkt. Við vinnum ekki þannig - við erum flokkur sem vill dreifa valdinu og hafa allt lýðræðislegt frekar en að einhver drög komi að ofan.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×