Bíó og sjónvarp

Sjáðu fyrstu stikluna úr Ég man þig: Drungalegir atburðir á Hesteyri

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það bíða margir spenntir eftir þessari mynd.
Það bíða margir spenntir eftir þessari mynd.
Vísir frumsýnir í dag fyrsta myndbrotið úr kvikmyndinni Ég man þig. Myndin er gerð eftir samnefndri bók Yrsu Sigurðardóttur sem seldist í bílförmum hér á landi og hefur verið gefin út um allan heim – og fengið frábærar móttökur.

Sannkallað stórskotalið stendur að gerð myndarinnar; Óskar Þór Axelsson sem gerði Svartur á leik leikstýrir og í aðalhlutverkum Jóhannes Haukur Jóhannesson, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Anna Gunndís Guðmundsdóttir og Sara Dögg Ásgeirsdóttir. Framleiðendur eru Sigurjón Sighvatsson, Skúli Malmquist, Þórir Snær Sigurjónsson og Chris Briggs Fyrir hönd Zik Zak Kvikmynda.

Seldist í 30.000 eintökum

Ég man þig kom út árið 2010 og er ein albesta og vinsælasta bók Yrsu. Hér á Íslandi hefur hún selst í tæplega 30 þúsund eintökum og úti í heimi hefur hún komið út á yfir 20 tungumálum. Gagnrýnandi breska dagblaðsins The Independent lýsti verkinu þannig: „Bókin vekur manni hroll alveg inn að beini og hér sýnir Yrsa að hún er ekki aðeins drottning íslensku glæpasögunnar heldur er hún jafn góð og Stephen King í því að skapa óhugnað og ótta hjá lesandanum.“

Kona um sjötugt hengir sig í afskekktri kirkju á Vestfjörðum eftir að hafa unnið skemmdarverk á kirkjunni. Nýlega aðfluttur geðlæknir á Ísafirði, Freyr, aðstoðar lögreglu við rannsókn málsins en fljótlega kemur í ljós að nokkrir skólafélagar konunnar úr æsku hafa einnig látist undanfarin ár, öll annað hvort í dularfullum slysum eða fyrir eigin hendi. Frey bregður illa þegar í ljós kemur að sum hinna látnu höfðu haft óeðlilega mikinn áhuga á hvarfi sjö ára sonar hans sem gufaði upp þremur árum fyrr og hefur aldrei fundist.

Handan Ísafjarðardjúps á Hesteyri eru þrjú borgarbörn komin til að gera upp gamalt hús. Skömmu eftir komu þeirra verða þau þess áskynja að þau eru ekki ein á svæðinu. Sögurnar tvær tengjast smám saman þegar á líður, ekki síst í gegnum sextíu ára gamalt mannshvarfsmál 10 ára drengs. Hér að neðan má sjá fyrstu stikluna úr þessari íslensku stórmynd en hún verður frumsýnd 5. maí hér á landi.


Tengdar fréttir

Þegar farinn að skrifa handritið

Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi hefur ráðið Ottó Geir Borg til þess að skrifa handritið að bókinni "Ég man þig" eftir Yrsu Sigurðardóttur. Ottó er þegar byrjaður að skrifa handritið og Sigurjón er vongóður um að tökur geti hafist fljótlega. Hann segir vel koma til greina að taka myndina upp á Hesteyri, þar sem sagan gerist.

Ástarævintýri sem hófst snemma

Leikstjórinn Óskar Þór Axelsson stýrði þremur þáttum af sakamálaseríunni Ófærð. Mörg spennandi verkefni eru fram undan á nýju ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.