Gylfi tölfræðilega betri en Alli, Hazard og Lallana en komst samt ekki úrvalslið Lampards 7. mars 2017 10:45 Gylfi Þór Sigurðsson komst ekki á miðjuna hjá Frank Lampard. vísir/getty/sky sports
Frank Lampard, fyrrverandi leikmaður West Ham, Chelsea og Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, var gestastjórnandi í fótboltaþættinum vinsæla Monday Night Football á Sky Sports í gærkvöldi þar sem hann leysti af Gary Neville. Lampard bauð meðal annars upp áhugaverðar pælingar um Paul Pogba, miðjumann Manchester United, en þessi þrefaldi Englandsmeistari sagði að lið kaupa ekki leikmann á 90 milljónir punda til að fá 90 milljónir vandamála. Nú styttist í að leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar þurfi að fara að velja besta leikmanninn, besta unga leikmanninn og lið ársins. Atkvæðaseðilinn berst til þeirra á næstu vikum og var Lampard því fenginn til að velja úrvalslið tímabilsins í þætti gærkvöldsins.Frank Lampard með Jamie Carragher í MNF í gærkvöldi.mynd/skjáskotFimm frá Chelsea Lampard fór létt með það en hann valdi fimm úr sínu gamla liði, Chelsea, og kannski eðlilega þar sem það er með góða forystu á toppnum og er í heildina búið að vera besta liðið á leiktíðinni. David De Gea, markvörður Manchester United, er í markinu og Tottenham-mennirnir Dele Alli og Harry Kane komust í liðið. Michael Keane, miðvörður Burnley, og Ryan Bertrand, bakvörður Southampton, eru einnig í liðinu. Vissulega gott lið hjá Lampard og erfitt að færa rök fyrir því að nokkur leikmaður þarna eigi ekki skilið sæti í úrvalsliði tímabilsins. Við Íslendingar söknum þó Gylfa Þórs Sigurðssonar sem er nánast einn síns liðs, með smá hjálp frá Fernando Llorente, að bjarga Swansea frá falli. Ekki nóg með það þá er hann líka að bjarga ferðamannabransanum í borginni eins og Vísir fjallaði um í síðustu viku. Lampard stillir upp fjögurra manna tígulmiðju og augljóslega heldur N'Golo Kante sæti sínu sem varnartengiliður en þá eru þrjár stöður sem Gylfi gæti tekið. Þær skipa Adam Lallana, Liverpool, Eden Hazard, Chelsea, og Dele Alli, Tottenham.Adam Lallana hefur dregist aftur úr í baráttunni við Gylfa Þór.Vísir/GettyGylfi með bestu tölfræðina Þessir þrír leikmenn eru í mun betri liðum að berjast um Englandsmeistaratitilinn og sæti í Meistaradeildinni á meðan Gylfi Þór berst við falldrauginn með Swansea. Tölfræðin er þó Gylfa í hag í baráttunni við þessa þrjá. Lallana, Alli og Hazard eru allir sóknarsinnaðir miðjumenn eins og Gylfi en Hazard spilar vitaskuld mun framar en þeir allir og er í raun framherji. Samt sem áður hefur hann komið að færri mörkum en íslenski landsliðsmaðurinn. Hazard er búinn að skora ellefu mörk og leggja upp fjögur. Hann hefur því komið með beinum hætti að fimmtán mörkum Chelsea eða 26 prósent þeirra 57 marka sem liðið er búið að skora á leið sinni að Englandsmeistaratitilinum. Adam Lallana er með lægstu tölfræðina en hann hefur staðnað verulega undanfarnar vikur síðan hann og Gylfi voru að berjast um flest mörk sköpuð af miðjumönnum í deildinni. Lallana er búinn að skora sjö mörk og leggja upp önnur sjö og koma þannig með beinum hætti að fjórtán af 58 mörkum Liverpool eða 24 prósent.Gylfi Þór skorar og/eða leggur upp nánast í hverjum leik.vísir/gettyVonandi sjá menn ljósið Dele Alli er aðeins fyrir ofan Lallana og Hazard. Hann er búinn að skora þrettán mörk af miðjunni hjá Tottenham sem er auðvitað ótrúlega vel gert enda frábær leikmaður. Dele er til viðbótar búinn að leggja upp fjögur mörk og koma þannig með beinum hætti að 17 af 53 mörkum Tottenham eða 32 prósent marka liðsins. Þá er komið að Gylfa Þór Sigurðssyni. Með miklu slakari menn í kringum sig heldur en hinir þrír er Hafnfirðingurinn búinn að taka völdin í eigin hendur hjá velska liðinu. Gylfi er búinn að skora átta mörk og leggja upp tíu og koma þannig með beinum hætti að 18 af 35 mörkum Swansea-liðsins á tímabilinu. Gylfi hefur því skorað eða lagt upp ríflega helming allra marka Swansea í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð eða 51 prósent. Ótrúleg tölfræði hjá frábærum leikmanni sem hlaut því miður ekki náð fyrir augum Franks Lampards að þessu sinni. Nú er bara að vona að aðrir leikmenn deildarinnar sjái ljósið þegar að þeir fá atkvæðaseðilinn í hendurnar.
Enski boltinn Tengdar fréttir Gylfi er ekki bara að bjarga Swansea frá falli heldur líka ferðamannabransanum í borginni Mikilvægi þess að vera með lið í ensku úrvalsdeildinni er gríðarlegt fyrir Swansea. 1. mars 2017 09:45 Sturluð stoðsending Gylfa, lætin á Old Trafford og allt hitt úr leikjunum í gær | Myndbönd Það var mikið fjör í leikjum gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni. 5. mars 2017 08:00 Gylfi deilir efsta sætinu yfir flestar stoðsendingar Stoðsending Gylfa gegn Chelsea í gær þýðir að hann deilir efsta sæti yfir flestar stoðsendingar á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni en Gylfi hefur komið að helming marka Swansea á leiktíðinni. 26. febrúar 2017 13:45 Messan: „Gylfi getur sett boltann viljandi í hönd varnarmannsins“ Messumenn skoðuðu atvik þegar Gylfi Þór Sigurðsson átti líklega að fá vítaspyrnu gegn Chelsea. 1. mars 2017 11:30 Llorente fær Gylfa til þess að blómstra Fernando Llorente hefur gengið í gegnum endurnýjun lífdaga undir stjórn Pauls Clement hjá Swansea. Hann vinnur einstaklega vel með Gylfa Sigurðssyni og saman hafa þeir skotið Swansea úr botnsætinu. 6. mars 2017 06:00 Gylfi: Þurfum ekki lengur greiða frá öðrum liðum Swansea, sem hefur unnið þrjár af síðustu fjórum leikjum sínum, mætir toppliði Chelsea á Stamford Bridge um helgina. 21. febrúar 2017 07:32 Mest lesið Uppgjörið: Stjarnan - Valur 95-81 | Sigur gegn meisturunum í fyrsta leik Körfubolti Eiður Smári sá son sinn leggja upp mark á móti Chelsea Fótbolti „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Enski boltinn Þykist vera norskur Ólympíufari á stefnumótaöppum: „Þetta er ógeðslegt“ Sport Leik lokið: Grindavík - ÍR 100-81 | Grindavík of stór biti fyrir nýliðana Körfubolti Andri Lucas: „Vona að pabbi hafi haldið með mér“ Fótbolti Njósnar ekki fyrir Heimi eftir gagnrýni á leikmenn: „Þekki manninn ekki neitt“ Fótbolti Trúir ekki skýringum og tippar á rifrildi við Rashford Enski boltinn Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ Enski boltinn Schumacher sást meðal fólks í fyrsta sinn í ellefu ár Formúla 1 Fleiri fréttir Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Samherji Stefáns Teits í átta leikja bann fyrir að bíta mótherja Trúir ekki skýringum og tippar á rifrildi við Rashford Eigandi Nottingham Forest ákærður af enska knattspyrnusambandinu Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sjö ár Holdafarsummæli Guardiola sem myllusteinn um háls Phillips Henry hélt að Saka yrði ekki það góður „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Sakar leikmenn United um leti á æfingum Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Rauða spjaldið hans Bruno dregið til baka Scholes brjálaður: De Ligt geti ekkert og ten Hag þjálfi liðið varla Fyrirliðinn segir Íslendingaliðið of gott fyrir C-deildina Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Dómarinn fyrrverandi segir Bruno hafa átt að fá gult Leikmenn láta í sér heyra: „Við erum í hættu“ Liverpool ekki meistaraefni: „Eru langt á eftir City og Arsenal“ Spilar ekki í deildinni fyrr en í nóvember Ten Hag verði ekki rekinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Dagný fékk gult þegar Hamrarnir nældu í sitt fyrsta stig Delap bjargaði stigi fyrir nýliðina Tottenham lék tíu United-menn grátt Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Sjá meira
Gylfi er ekki bara að bjarga Swansea frá falli heldur líka ferðamannabransanum í borginni Mikilvægi þess að vera með lið í ensku úrvalsdeildinni er gríðarlegt fyrir Swansea. 1. mars 2017 09:45
Sturluð stoðsending Gylfa, lætin á Old Trafford og allt hitt úr leikjunum í gær | Myndbönd Það var mikið fjör í leikjum gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni. 5. mars 2017 08:00
Gylfi deilir efsta sætinu yfir flestar stoðsendingar Stoðsending Gylfa gegn Chelsea í gær þýðir að hann deilir efsta sæti yfir flestar stoðsendingar á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni en Gylfi hefur komið að helming marka Swansea á leiktíðinni. 26. febrúar 2017 13:45
Messan: „Gylfi getur sett boltann viljandi í hönd varnarmannsins“ Messumenn skoðuðu atvik þegar Gylfi Þór Sigurðsson átti líklega að fá vítaspyrnu gegn Chelsea. 1. mars 2017 11:30
Llorente fær Gylfa til þess að blómstra Fernando Llorente hefur gengið í gegnum endurnýjun lífdaga undir stjórn Pauls Clement hjá Swansea. Hann vinnur einstaklega vel með Gylfa Sigurðssyni og saman hafa þeir skotið Swansea úr botnsætinu. 6. mars 2017 06:00
Gylfi: Þurfum ekki lengur greiða frá öðrum liðum Swansea, sem hefur unnið þrjár af síðustu fjórum leikjum sínum, mætir toppliði Chelsea á Stamford Bridge um helgina. 21. febrúar 2017 07:32