Viðskipti innlent

Fargjaldatekjur Strætó jukust um 10 prósent milli ára

Atli Ísleifsson skrifar
Handbært fé hækkaði um 393 milljónir króna á árinu og var í lok árs um 907 milljónir króna.
Handbært fé hækkaði um 393 milljónir króna á árinu og var í lok árs um 907 milljónir króna. vísir/vilhelm
Fargjaldatekjur Strætó á árinu 2016 námu 1,82 milljarðar króna og hækkuðu um 165 milljónir króna milli ára eða um 10 prósent. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó. Rekstrarafkoman var jákvæð um 180 milljónir króna og 156 milljónir hærri en árið 2015. Er þetta áttunda árið í röð sem afkoma fyrirtækisins sé jákvæð.

„Heildarrekstrarkostnaður almenningsvagna og leiðakerfis voru um 46 m.kr. undir áætlun. Kostnaður við eigin akstur var heldur lægri en gert var ráð fyrir, sem skýrist af lægri kostnað við viðhald, varhluti og minni olíunotkun.

Ráðist var í um 300 m.kr. fjárfestingum á fjórum rafmagnsvögnum og búnaði tengdum þeim sem koma til landsins í júní. Jafnmframt er fyrirhugað að fjárfesta fyrir um 300 m.kr. í kaup á nýjum vögnum árið 2017 og einnig setja um 40 m.kr. í frekari uppbyggingu í upplýsingatækni og rafrænum lausnum.  Handbært fé hækkaði um 393 m.kr. á árinu og var í lok árs um 907 m.kr.,“ segir í tilkynningunni.

Haft er eftir Jóhannesi Rúnarssyni, framkvæmdastjóra Strætó, að hann sé ánægður með árangurinn sem náðist á síðasta ári. „Þetta er uppskera þeirra aðgerða sem við fórum í. Við skárum niður um rúmar 250 milljónir og þurftum að velta við hverjum steini og finna leiðir til að nýta fjármagnið betur.

Við erum einbeitt að því markmiði að gera betur og einfalda þjónustu okkar. Árið 2017 snýst um að halda áfram þeirri vinnu sem við lögðum grunninn að á síðasta ári og huga að framtíðarsýn okkar. Við munum halda áfram að þróa rafrænar lausnir og að nýta okkur þá tækni sem við höfum fjárfest í til þess að slípa verklag og einfalda þjónustu fyrir farþega Strætó,“ segir Jóhannes.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×