Lífið

Verður fyrir miklum fordómum, ætlar að taka upp nafnið Hroði og er besti vinur tollvarða

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rúnar Geirmundsson keppir í Las Vegas á næstu dögum.
Rúnar Geirmundsson keppir í Las Vegas á næstu dögum.
Fjallað var um Rúnar „Hroða“ Geirmundsson í Íslandi í dag á Stöð 2 í gær. Kjartan Atli Kjartansson fékk að fylgjast með honum á æfingum fyrir heimsmeistaramótið í kraftlyftingum sem fram fer í Las Vegas um helgina.

Rúnar þykir sigurstranglegur í sínum flokki og tekur næstum því fjórfalda líkamsþyngd í hnébeygju.

„Þetta er margra mánaða undirbúningur og ég hef verið að undirbúa mig 100% í fjóra til fimm mánuði,“ segir Rúnar.

Samfélagsmiðlar hafa breytt lífi Rúnars töluvert þegar kemur að því að lifa af sportinu.

„Það eru loksins komnir peningar inn í þetta með tilkomu samfélagsmiðla. Þá eru fyrirtæki og jafnvel einstaklingar að styrkja mann. Ég er búinn að gera þetta í tíu ár og það kom í raun úr mínum eigin vasa fyrstu átta árin.“

Rúnar segist vilja vera góð fyrirmynd.

„Ég hef aldrei smakkað áfengi, aldrei smakkað tóbak eða nein vímuefni. Ég reyni bara að vera góð fyrirmynd og ég held að fólk sé að átta sig á þessu, þó maður sé svona útlítandi. Þegar fólk spyr mig hvort ég sé eitthvað að fá mér og ég svara því neitandi þá heldur það oft að ég sé í AA.“

Fólki bregður hreinlega þegar hann segist aldrei hafa prófað nein efni. Rúnar segir að það sé mjög erfitt að ferðast.

„Ég er í raun besti vinur tollvarðana. Ég er oft kannski kominn í gegn og þá sjá öryggisverðirnir mig í myndavélunum og kalla mig til baka. Maður verður bara að taka þessu með bros á vör.“

Rúnar kallaður Hróði en hvaðan kemur það nafn?

„Það er góð saga núna en var það kannski ekki áður. Þetta kemur frá því að einn félaginn minn kallaði mig Hróðinn eftir fyrsta mótið og mér fannst það frekar geðveikt. En þá var hann víst bara að gera grín að mér, ég var ekkert sterkur,“ segir Rúnar og bætir við að hann sé að hugsa um að fá þetta nafn samþykkt.

Hér að neðan má sjá þáttinn frá því í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×