Afar fáir nýtt rétt til læknismeðferðar erlendis Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 16. janúar 2017 07:00 Viðmiðunarmörk landlæknis um það sem getur talist ásættanleg bið eftir aðgerð eða meðferð hjá sérfræðingi eru 90 dagar frá greiningu. vísir/gva
Sjúkratryggingum Íslands er heimilt að greiða fyrir læknismeðferð erlendis ef nauðsynleg meðferð eða aðgerð er ekki í boði hjá sérfræðingi innan réttlætanlegra tímamarka á Íslandi sem eru 90 dagar frá greiningu samkvæmt viðmiðunarmörkum landlæknis. Reglugerð um rétt til meðferðar erlendis vegna langs biðtíma hér hefur verið í gildi frá því í maí 2012. Aðeins 21 umsókn hefur borist um læknismeðferð erlendis á grundvelli reglugerðarinnar. Samkvæmt upplýsingum frá Sjúkratryggingum Íslands hafa sjö einstaklingar farið utan í gerviliðaaðgerð, fimm á mjöðm og tveir á hné. Fjórar umsóknir voru dregnar til baka en þremur umsóknum var hafnað þar sem skilyrði voru ekki uppfyllt. Sjö umsóknir eru í vinnslu. Kostnaður Sjúkratrygginga vegna heilbrigðisþjónustu sem veitt var erlendis í þessum sjö tilfellum var frá 1,4 milljónum íslenskra króna upp í 3,4 milljónir. Aðgerðirnar sjö voru framkvæmdar í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi.Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslandsvísir/gvaSamtals biðu 493 einstaklingar eftir gerviliðaaðgerð á mjöðm í október 2016, þar af hafði 361 beðið lengur en 90 daga. Biðtíminn var í október 32 til 36 vikur en hann var mislangur eftir aðgerðastöðum, samkvæmt upplýsingum frá landlæknisembættinu. Alls biðu 804 einstaklingar eftir gerviliðaaðgerð á hné. Af þeim höfðu 633 beðið lengur en 90 daga. Biðtíminn í október 2016 var 63 til 70 vikur. Enginn hefur sótt um að komast í augasteinsaðgerð erlendis en samtals biðu 3.997 einstaklingar hér á landi eftir slíkri aðgerð í október 2016. Þar af höfðu 3.298 beðið lengur en 90 daga. Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, segir ástæðurnar fyrir fáum umsóknum geta verið margar. „Fólk hefur einungis óljósa hugmynd um þennan rétt auk þess sem það er hægara sagt en gert að nýta hann. Staðfesta þarf með læknisvottorði að biðtíminn eftir aðgerðinni hér á landi sé óásættanlegur. Aðgerð erlendis þarf að bóka fyrirfram og í mörgum tilvikum þarf sjúklingurinn einnig að leggja fram læknisvottorð og önnur heilsufarsleg gögn.“ Þann 1. júní síðastliðinn tóku gildi lög hér á landi um heilbrigðisþjónustu yfir landamæri innan landa Evrópska efnahagssvæðisins, EES, svokölluð landamæratilskipun. Samkvæmt henni á sjúkratryggður rétt á heilbrigðisþjónustu þar sem hann kýs sjálfur innan EES- svæðisins, með ákveðnum skilyrðum samkvæmt lögunum. Þá munu sjúkratryggingar greiða sömu upphæð og þjónustan kostar í því landi þar sem einstaklingurinn er sjúkratryggður. Að sögn Steingríms verður áfram unnið eftir reglugerðinni frá 2012 enda sé hún í fullu gildi. „Hún veitir að nokkru leyti betri rétt en landamæratilskipunin sem tók gildi um mitt ár í fyrra þar sem þeir sem fá samþykki á grundvelli reglugerðarinnar frá 2012 fá endurgreiddan kostnaðinn að fullu auk ferðakostnaðar leiti þeir til opinbers þjónustuaðila.“ Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Erlendur ferðamaður fannst látinn við Stuðlagil Innlent Ökumaðurinn liðlega tvítugur Innlent Öllum sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu lokað Innlent Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ nálgast Flórída Erlent Gætu ekki flúið þótt þau vildu Erlent Báðu um paramynd og augnabliki síðar var veskið horfið Innlent Sagðist nýlega hafa rætt við löngu látna konu sína Innlent Hlaut lífshættulega áverka vegna stunguárásar Innlent Enn eitt barnið sem dettur ofan í holu Innlent Sigríður Hrönn Elíasdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Heimilislæknar upplifi stundum pressu á að skrifa lyfin út Stefna á að opna sundlaugar í Reykjavík í fyrramálið Ísland í mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna Vísa á bug kenningu um að stjórnarsamstarfið tóri á styrkveitingum Undraverður bati með háþrýstimeðferð Þurfa ekki að greiða vegna viðskiptavina sem borguðu ekki fyrir bílastæði Kvíðin í aðdraganda hamfara og spenna í þingheimi Hagstofan biðst velvirðingar og tekur talnaefnið úr birtingu The Guardian fjallar um túrismann sem gleypi íslenska tónleikastaði Erlendur ferðamaður fannst látinn við Stuðlagil Öllum sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu lokað Hlaut lífshættulega áverka vegna stunguárásar Árekstur á Eyrarbakkavegi Ríkisstarfsmenn ofmetnir um fimm þúsund Báðu um paramynd og augnabliki síðar var veskið horfið Bilun gæti valdið heitavatnsleysi víðar Hæstánægð með Höllu „Við sjáum afleiðingar þess að vinna ekki fyrir ofan fossinn“ Telur að Óli Björn líti svo á að VG hafi kastað stríðshanskanum Stjórnarsamstarfi efnislega lokið? Vongóð um að Ísland fái sæti í mannréttindaráðinu Ökumaðurinn liðlega tvítugur Réðst á fyrrverandi kærustur og aðstoðarslökkviliðsstjóra Telja óstaðbundin störf of kostnaðarsöm Kom skemmtilega á óvart að hitta Margréti Danadrottningu Ríkisstjórnin á valdi „minnsta og veikasta“ flokksins Nú má keyra á nagladekkjum í borginni Sigríður Hrönn Elíasdóttir er látin Enn eitt barnið sem dettur ofan í holu Heitavatnslaust víða í Vesturbænum Sjá meira