Ásakanir ganga á víxl vegna hvarfs Tinnu en eigendurnir halda í vonina Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 11. janúar 2017 14:00 Andrea og Ágúst, eigendur Tinnu, hafa leitað dag og nótt að hundinum sínum,
Hvorki hefur gengið né rekið í leitinni að hundinum Tinnu sem ekki hefur sést í um tvær vikur. Hópur fólks tók þátt í leitinni en skipulagðri leit hefur nú verið hætt, þó eigendur Tinnu hafi ekki gefið upp vonina og haldi áfram að leita. Eigendurnir, Andrea Björnsdóttir, og Ágúst Ævar Guðbjörnsson, segjast orðin örvæntingarfull og ráðþrota, en í fyrstu buðu þau 200 þúsund krónur í fundarlaun, og hækkuðu fundarlaunin nokkrum dögum síðar í 300 þúsund krónur. Hvarf Tinnu hefur vakið mikla athygli, ekki síst í hópnum Hundasamfélaginu sem telur um 22 þúsund manns. Mikill fjöldi fólks hefur lagt hönd á plóg og leitað hundsins, beðið vini og ættingja um að hafa augun opin, drónum hefur verið flogið yfir Reykjanesbæ, þaðan sem Tinna hvarf, og miðlar hafa reynt að spá í spilin, svo fátt eitt sé nefnt.Sjá einnig:Miðill kveðst hafa séð Tinnu nálægt álverinu Þrátt fyrir mikla samstöðu fólks innan hundasamfélagsins hefur nokkurt uppnám átt sér þar stað því ásakanir hafa gengið á víxl um að verið sé að beina leitarhópunum á rangar brautir. Hundurinn Tinna var í pössun hjá konu, sem eigendurnir kynntust á netinu, þegar Tinna týndist og hefur konan vart komist úr húsi vegna ýmissa ásakana í hennar garð, en hún hefur verið nafngreind á netinu, heimilisfang hennar hefur verið gefið upp og myndir hafa verið birtar af húsi hennar. Andrea og Ágúst vísuðu því á bug að leitin sé auglýsingabrella fyrir smáforrit sem þau hafa verið að vinna að og gengur út á að finna týnda hunda, í viðtali við mbl.is.Sjá einnig:Eigendur örvæntingarfullir og bjóða fundarlaunMáli Tinnu líkt við Lúkasar-málið Hundurinn er besti vinur mannsins og því ekki að furða að eigendur leiti allra leiða til þess að fá vini sína aftur í hendurnar, sem þó hefur oftar en ekki leitt til múgæsings. Má þar meðal annars nefna Lúkasar-málið svokallaða, en máli Tinnu hefur að undanförnu verið líkt við það mál, sökum þessa uppþots sem hefur átt sér stað síðustu daga.Lúkasar-málið kom upp þegar hundurinn Lúkas, af tegundinni Chinese Crested, týndist sumarið 2007. Þá var karlmaður sakaður um að hafa orðið hundinum að bana en hann mátti þola miklar ofsóknir – allt þar til hundurinn loks fannst, heill á húfi, þremur mánuðum eftir að hann týndist. Þá höfðu verið haldnar kertafleytingar og minningarathafnir fyrir Lúkas svo fátt eitt sé nefnt. Meintur dýraníðingur fékk í kjölfarið 200 þúsund krónur í miskabætur.Rætt var við eigendur Lúkasar í kvöldfréttum Stöðvar 2 eftir að hann fannst á sínum tíma, en innslagið má sjá hér fyrir neðan.Björgunarsveitir kallaðar út vegna Hunters Fleiri hundar hafa öðlast landsfrægð á einni nóttu og má þar meðal annars nefna hundinn Hunter sem slapp úr búri sínu á Keflavíkurflugvelli í júní 2014. Umfangsmikil leit var sett af stað; björgunarsveitir voru kallaðar út ásamt því sem lögregla og þyrlan voru fengin til leitarinnar. Þá tók mikill fjöldi fólks á Suðurnesjum þátt í leitinni. Eigandi hundsins, sænsk kona, vandaði starfsfólki IGS á Keflavíkurflugvelli ekki kveðjurnar og sagði búr Hunters hafa fallið af nokkurra metra hæð af færibandi, ella hefði það aldrei opnast. Hún bauð 200 þúsund krónur í fundarlaun ásamt því sem Icelandair bauð tvo flugmiða til áfangastaða sinna. Hunter fannst að lokum við Þórshöfn í Ósabotnum. Kötturinn Nuk sem slapp úr einkaþotu Það eru ekki bara hundar sem hafa vakið athygli við hvarf þeirra hér á landi því Flugbjörgunarsveit Reykjavíkur var ræst út eftir að danski kötturinn Nuk strauk úr einkaþotu á Reykjavíkurflugvelli. Sjá einnig: Starfsmenn Tollstjóra funduðu vegna Nuk Eigandinn, Susanne Alsing, lýsti yfir þungum áhyggjum og lofaði 100 þúsund krónum fyrir köttinn. Enginn fékk þó fundarlaunin því Susanne sjálf fann köttinn í flugskýli nokkur hundruð metrum frá flugvélinni. Þessi listi er langt frá því að vera tæmandi, en fyrrnefnd mál eru þau sem vakið hafa mikla athygli á undanförnum árum, en fleiri mál sem vakið hafa athygli eru að finna í tengdum fréttum hér að neðan. Eigandi Hunters var afskaplega glaður þegar hundurinn loks fannst.
Tengdar fréttir Týndi hundinum sínum í kerfinu Marvin Michelsen, tvítugur Reykvíkingur, hefur undanfarinn mánuð gert mikla leit að hundinum sínum, Mjölni. Ótrúleg atburðarás varð til þess að Mjölnir endaði í höndunum á nýjum eigendum sem Marvin veit ekki hverjir eru. 7. júlí 2009 13:55 Hunter fékk loksins að borða | Myndband "Hann haltrar aðeins. Það er allt og sumt,“ sagði hin sænska Katarina Reinhall eftir að hundurinn hennar Hunter fannst í hólma við Þórshöfn í Ósabotnum í kvöld. 19. júní 2014 00:35 Hundurinn sem hraktist út á haf fannst dauður Hátt á annan tug björgunarsveitarmanna á þremur bátum leituðu í gær hunds sem sloppið hafði frá eiganda sínum í Skerjafirði og synt á haf út. 26. maí 2015 18:31 Hundurinn Hunter grét þegar hann kom heim Eigandinn hefur boðið Árna Stefáni til Svíþjóðar. 22. júní 2014 13:20 Hundrað kærðir í Lúkasarmálinu Lögreglan á Akureyri rannsakar nú hvort gefa eigi út ákæru á hendur hundrað einstaklingum sem Helgi Rafn Brynjarsson hefur kært fyrir meiðandi ummæli á netinu. Helgi var á sínum tíma sakaður um að hafa myrt hundinn Lúkas á Akureyri og í kjölfarið rigndi yfir hann hótunum. Lúkas reyndist síðan vera við hestaheilsu. 13. september 2007 11:23 Lúkasarmálið lifir enn - vill skaðabætur Lúkasarmálinu svokallaða er langt frá því að vera lokið. Maður sem grunaður var um að hafa orðið hundinum Lúkasi að bana og mátti þola ofsóknir í kjölfarið ætlar að freista þess að sækja skaðabætur frá þeim sem gengu hvað lengst. 16. nóvember 2010 20:40 Leitar enn að hundinum Mjölni „Ég gefst ekkert upp, ég held áfram að reyna að finna barnið mitt," segir Marvin Michelsen, tvítugur Reykvíkingur, sem lenti fyrir gráglettni örlaganna í því að hundurinn hans, Mjölnir, var gefinn nýjum eigendum í byrjun júní. 10. júlí 2009 16:48 Lúkas lifir í dómsölum - þurfti að endurflytja málið Fyrsta dómsuppsaga í meiðyrðamáli, sem Helgi Rafn Brynjarsson hefur höfðað, verður á næsta fimmtudag. Lúkasarmálið er eitt undarlegasta fréttamál sem upp hefur komið á síðari árum. Það snérist um hundinn Lúkas sem hvarf sumarið 2007 en af einhverjum ástæðum bitu nokkrir bloggarar það í sig að Helgi Rafn ætti einhvern hlut að máli. 7. febrúar 2011 10:32 Loppuför vöktu von um að Flosi sé enn á lífi Flosi hvarf fyrir fjórum vikum síðan. 7. apríl 2015 12:21 Mest lesið Sagðist nýlega hafa rætt við löngu látna konu sína Innlent Enn eitt barnið sem dettur ofan í holu Innlent Mikið um dýrðir í Íslandsboðinu í konungshöllinni Innlent Sigríður Hrönn Elíasdóttir er látin Innlent Margir í vandræðum í Kömbunum Innlent Hugðust ráðast á fjölda fólks á kjördag og deyja píslardauða Erlent Lyfin hjálpi fólki í vandræðum en leysi ekki vandann Innlent Afhöfðaður sex dögum eftir embættistöku Erlent Segir Rússa reyna að skapa usla á götum Evrópu Erlent Milton safnar aftur krafti Erlent Fleiri fréttir Ríkisstjórnin á valdi „minnsta og veikasta“ flokksins Nú má keyra á nagladekkjum í borginni Sigríður Hrönn Elíasdóttir er látin Enn eitt barnið sem dettur ofan í holu Heitavatnslaust víða í Vesturbænum Sagðist nýlega hafa rætt við löngu látna konu sína Lyfin hjálpi fólki í vandræðum en leysi ekki vandann Mikill viðbúnaður vegna hnífaárásar í nótt Mikið um dýrðir í Íslandsboðinu í konungshöllinni Margir í vandræðum í Kömbunum Greiða atkvæði um verkfall í níu skólum fram á fimmtudag Ýmsar áhyggjur varðandi flóttamenn í JL-húsinu Ekkert á hreinu um næstu kosningar Snjóþekja á Hellisheiði Leynd yfir aðgerðum kennara og í beinni frá höllinni Ákærður fyrir að nauðga barnungri frænku sinni Milljónagreiðslur haldi stjórnarflokkunum saman Skorti langtímarannsóknir á áhrifum Ozempic og Wegovy Bílastæðin malbikuð og nýr útsýnispallur fyrir fatlað fólk Reyna að ná til nýbúa til að Ísland verði fyrsta reyklausa þjóðin Varaþingmaður Miðflokksins vill skoða að stofna íslenskt varnarlið Kennarar greiða atkvæði um verkfall Svandís og Sigurður Ingi verja flugvallarákvörðun Rukka fyrir stæðin í þjóðgarðinum Yazan og fjölskylda komin með vernd „Þetta er bara órætt okkar á milli“ Alvarleg staða á leikskólunum sem þurfi að taka á tafarlaust Ekkert nema styrkleikamerki að birta öryggisveikleika Hugmyndir VG um vorkosningar óræddar og Kópavogsmódelið í borginni Verður kominn í rafrænt eftirlit þremur árum eftir manndrápið Sjá meira
Týndi hundinum sínum í kerfinu Marvin Michelsen, tvítugur Reykvíkingur, hefur undanfarinn mánuð gert mikla leit að hundinum sínum, Mjölni. Ótrúleg atburðarás varð til þess að Mjölnir endaði í höndunum á nýjum eigendum sem Marvin veit ekki hverjir eru. 7. júlí 2009 13:55
Hunter fékk loksins að borða | Myndband "Hann haltrar aðeins. Það er allt og sumt,“ sagði hin sænska Katarina Reinhall eftir að hundurinn hennar Hunter fannst í hólma við Þórshöfn í Ósabotnum í kvöld. 19. júní 2014 00:35
Hundurinn sem hraktist út á haf fannst dauður Hátt á annan tug björgunarsveitarmanna á þremur bátum leituðu í gær hunds sem sloppið hafði frá eiganda sínum í Skerjafirði og synt á haf út. 26. maí 2015 18:31
Hundurinn Hunter grét þegar hann kom heim Eigandinn hefur boðið Árna Stefáni til Svíþjóðar. 22. júní 2014 13:20
Hundrað kærðir í Lúkasarmálinu Lögreglan á Akureyri rannsakar nú hvort gefa eigi út ákæru á hendur hundrað einstaklingum sem Helgi Rafn Brynjarsson hefur kært fyrir meiðandi ummæli á netinu. Helgi var á sínum tíma sakaður um að hafa myrt hundinn Lúkas á Akureyri og í kjölfarið rigndi yfir hann hótunum. Lúkas reyndist síðan vera við hestaheilsu. 13. september 2007 11:23
Lúkasarmálið lifir enn - vill skaðabætur Lúkasarmálinu svokallaða er langt frá því að vera lokið. Maður sem grunaður var um að hafa orðið hundinum Lúkasi að bana og mátti þola ofsóknir í kjölfarið ætlar að freista þess að sækja skaðabætur frá þeim sem gengu hvað lengst. 16. nóvember 2010 20:40
Leitar enn að hundinum Mjölni „Ég gefst ekkert upp, ég held áfram að reyna að finna barnið mitt," segir Marvin Michelsen, tvítugur Reykvíkingur, sem lenti fyrir gráglettni örlaganna í því að hundurinn hans, Mjölnir, var gefinn nýjum eigendum í byrjun júní. 10. júlí 2009 16:48
Lúkas lifir í dómsölum - þurfti að endurflytja málið Fyrsta dómsuppsaga í meiðyrðamáli, sem Helgi Rafn Brynjarsson hefur höfðað, verður á næsta fimmtudag. Lúkasarmálið er eitt undarlegasta fréttamál sem upp hefur komið á síðari árum. Það snérist um hundinn Lúkas sem hvarf sumarið 2007 en af einhverjum ástæðum bitu nokkrir bloggarar það í sig að Helgi Rafn ætti einhvern hlut að máli. 7. febrúar 2011 10:32
Loppuför vöktu von um að Flosi sé enn á lífi Flosi hvarf fyrir fjórum vikum síðan. 7. apríl 2015 12:21