Annar reyndi að skalla bjórglasið en hinn drakk úr því | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. október 2017 23:00 Jozy Altidore fagnar marki með bandaríska landsliðinu. Vísir/Getty
Tveir leikmenn Toronto FC í bandarísku atvinnumannadeildinni kipptu sér ekki mikið upp við það þótt stuðningsmenn mótherja þeirra brugðust illa við þegar þeir skoruðu mark á nýja Mercedes-Benz leikvanginum í Atlanta. Þvert á móti fóru þeir óvenjulega leið þegar pirraðir stuðningsmenn ætluðu að henda í þá bjórglasi eftir að Toronto liðið jafnaði metin eftir klukkutíma leik. Leikmennirnir sem um ræðir eru Bandaríkjamaðurinn Jozy Altidore og Ítalinn Sebastian Giovinco en þeir voru báðir á skotskónum í leiknum á móti Atlanta United. Atvikið með bjórglasið varð eftir að Jozy Altidore jafnaði metin í 1-1 á 60. mínútu. Stuðningsmaður Atlanta United reyndi þá að kasta bjórglasi í Altidore sem brást við því með því að reyna að skalla bjórglasið. Glasið, sem var úr plasti, var nokkuð frá því að ná alla leið til Jozy Altidore en þá kom Sebastian Giovinco aðvífandi, tók upp glasið og tók sopa. Sopinn hafði greinilega góð áhrif á Sebastian Giovinco því hann skoraði seinna mark Toronto FC 24 mínútum síðar. Það gerði þó ekki meira en að tryggja Toronto liðinu jafntefli því Atlanta United hafði komist aftur yfir í millitíðinni. Það má sjá markið, fagnið og fljúgandi bjórglasið í myndbandi MLS-deildarinnar hér fyrir neðan.JOZY! It's level in Atlanta.#ATLvTOR // #DecisionDay by @ATThttps://t.co/m6CkcQPs8x — Major League Soccer (@MLS) October 22, 2017 Jozy Altidore er búinn að skora 16 mörk í 29 leikjum á tímabilinu en Sebastian Giovinco hefur gert enn betur því hann er með 19 mörk í 28 leikjum. Þeir félagar eru því samanlagt með 35 mörk á leiktíðinni sem er frábær tölfræði. Toronto liðið er líka á toppi deildarinnar og er langmarkahæsta liðið.
Fótbolti Mest lesið Schumacher sást meðal fólks í fyrsta sinn í ellefu ár Formúla 1 Tók einn og hálfan tíma að finna ungu hjólreiðakonuna sem lést Sport Ekki ánægður með stöðu Hákons Rafns Fótbolti Landsliðshópurinn: Sverrir kemur inn og Brynjólfur valinn Fótbolti Margbrotnaði á andliti, gæti verið dofinn fyrir lífstíð en ætlar að spila áfram Sport Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Enski boltinn Sakar leikmenn United um leti á æfingum Enski boltinn Þúsund Walesverjar í Dalnum og Åge kallar eftir hjálp Fótbolti Snýr aftur heim í KR Íslenski boltinn Dæmdi ekki í Meistaradeildinni eftir að hafa hótað að drepa leikmann Fótbolti Fleiri fréttir „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Þúsund Walesverjar í Dalnum og Åge kallar eftir hjálp Snýr aftur heim í KR Kristian ekki spilað nóg en fer í U21 Dæmdi ekki í Meistaradeildinni eftir að hafa hótað að drepa leikmann Ekki ánægður með stöðu Hákons Rafns Enn pláss fyrir Aron sem fer í segulómun Landsliðshópurinn: Sverrir kemur inn og Brynjólfur valinn Hættir við að hætta til að mæta Íslandi Sjáðu markaflóðið úr Meistaradeildinni Sonur Sterlings leiddi Saka út á völlinn Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Sakar leikmenn United um leti á æfingum Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Slæm höfuðmeiðsli Le Normand eftir áreksturinn við Tchouaméni Dortmund í sjöunda himni | Stórsigrar hjá Barcelona og Inter Öruggt hjá Skyttunum Þægilegt í Slóvakíu Á met sem enginn vill Brest tímabundið á topp Meistaradeildarinnar Rauða spjaldið hans Bruno dregið til baka „Vil ekki snúa þessu upp í sápuóperu“ Chiesa ekki með gegn Ítölunum Tarik í bann eftir fræknu frammistöðuna Sonur Zlatans í fyrsta sinn í landslið Klopp heiðraður af Þýskalandsforseta Scholes brjálaður: De Ligt geti ekkert og ten Hag þjálfi liðið varla Gáfu skít í yfirmann sem hreykti sér af þeirra afrekum Sjáðu slysalegt sjálfsmark og Emil skora í tólfta sinn Hélt hann væri laus við þessi mál Sjá meira